5 month-5 2025 kl. 07:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
- Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) aðalmaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir upplýsinga- og skjalastjóri
Röð dagskrárliða var breytt.
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Kynning á hættumati Veðurstofu Íslands fyrir höfuðborgarsvæðið202506039
Kynning frá Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins á skýrslum Veðurstofu Íslands um náttúru- og jarðskjálftavá á höfuðborgarsvæðinu.
Lagt fram og kynnt.
Bæjarráð þakkar Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins fyrir greinargóða kynningu.2. Breyting á skipan fastanefnda - tillaga vinnuhóps202504131
Tillaga vinnuhóps um breytingu á skipan fastanefnda.
***
Fundarhlé hófst kl. 8.47. Fundur hófst aftur kl. 8.55
***Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum tillögu vinnuhóps að breytingum á skipan fastanefnda Mosfellsbæjar í samræmi við fyrirliggjandi tillögu. Bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum breytingu á samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar nr. 1225/2022, með síðari breytingum í samræmi við meðfylgjandi tillögu. Bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að vísa málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn, en samkvæmt 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 þarfnast breytingar á samþykktinni tveggja umræðna í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá við afgreiðslu málsins.
***
Bókun D-lista:
Betri og nánari upplýsingar vantar í tillöguna, ekki kemur fram í tillögunni hvernig þessi breyting feli í sér betra starfsumhverfi og öflugra nefndarstarf til framtíðar.
Sundurliðaður kostnaður kemur ekki fram og ekki eru upplýsingar um mögulegan aukinn kostnað við sameinaðar nefndir.Ekki er í tillögunni getið um áheyrnarfulltrúa nýrra sameinaðra nefnda heldur einungis gert ráð fyrir að 5 aðalmenn og 5 varamenn verði í nýjum nefndum, en fyrir er í öllum nefndum einn áheyrnafulltrúi minnihlutans venju samkvæmt en einnig eru áheyrnarfulltrúar meirihlutans í öllum nefndum. Af þessum ástæðum sitja fulltrúar D-lista hjá við afgreiðslu málsins.
***
Fundarhlé hófst kl. 9.02. Fundur hófst aftur kl. 9.12
***Bókun B, S og C lista:
Bæjarráðsfulltrúar B, S og C lista benda á að í samþykktum Mosfellsbæjar varðandi fastanefndir bæjarins er einungis talað um aðalmenn og varamenn. Ekki er fjallað sérstaklega um áheyrnarfulltrúa. Tillagan varðar breytingar á þessari samþykkt og þar af leiðandi er ekki vísað til áheyrnarfulltrúa í tillögunni.
Hvað varðar fjárhagsleg áhrif tillögunnar þá verður lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun þar sem áhrif hennar koma fram. Þar sem breytingar á samþykktum bæjarins verða lögum samkvæmt að fá tvær umræður í bæjarstjórn er þessi tillaga lögð fram núna.
***
Rúnar Bragi Guðlaugsson vék af fundi undir dagskrárliðnum.3. Varmárskóli heimilisfræðistofa, Nýframkvæmd202004121
Óskað er heimildar til að semja við lægstbjóðanda, LK Þjónustan ehf, vegna endurbyggingar á gólfplötu í kjallara vesturálmu Varmárskóla.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að heimila umhverfissviði að semja við lægstbjóðanda, LK Þjónustan ehf., vegna endurbyggingar á gólfplötu í kjallara vesturálmu Varmárskóla.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup er óheimilt að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum fimm daga biðtíma. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um framangreinda ákvörðun.
Gestir
- Óskar Gísli Sveinsson, deildarstjóri nýframkvæmda
4. Endurbætur skólalóða - Varmárskóli - Nýframkvæmd202306281
Óskað er heimildar bæjarráðs til að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði um endurnýjun skólalóðar Varmárskóla.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að heimila umhverfissviði að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði um endurnýjun skólalóðar Varmárskóla.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup er óheimilt að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum fimm daga biðtíma. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um framangreinda ákvörðun.
Gestir
- Óskar Gísli Sveinsson, deildarstjóri nýframkvæmda
5. Endurbætur skólalóða - Lágafellsskóli - Nýframkvæmd202504322
Óskað er heimildar bæjarráðs til að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði um endurnýjun skólalóðar Lágafellsskóla.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að heimila umhverfissviði að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði um endurnýjun skólalóðar Lágafellsskóla.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup er óheimilt að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum fimm daga biðtíma. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um framangreinda ákvörðun.
Gestir
- Óskar Gísli Sveinsson, deildarstjóri nýframkvæmda
6. Nýframkvæmd - Brúarland framkvæmdir 2024202401268
Óskað er heimildar bæjarráðs til þess að bjóða út endurnýjun á þaki Brúarlands. Áður en framkvæmdir við þak hefjast er óskað heimildar til að fá þjónustuverktaka bæjarins í að fjarlægja skemmt byggingarefni af 3. hæð hússins.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að heimila útboð á endurnýjun á þaki Brúarlands. Bæjarráð samþykkir jafnframt heimild til að fá þjónustuverktaka í að fjarlægja skemmt byggingarefni af 3. hæð hússins.
Gestir
- Óskar Gísli Sveinsson, deildarstjóri nýframkvæmda
7. Samningur um leikskólapláss við LFA202303557
Viðauki við samning við LFA ehf. um vistun leikskólabarna lagður fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum viðauka við þjónustusamning um leikskólavist og greiðslu leikskólagjalda við LFA (Leikskóla fyrir alla) í samræmi við meðfylgjandi tillögu.
Í lok fundar var samþykkt að fundarboð næsta fundar bæjarráðs, sem fram fer 12. júní, verði sent þriðjudaginn 10. júní þar sem 9. júní er almennur frídagur.