Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Gljúfrasteinn

Ver­ið vel­komin á Umbru og arf­inn, heill­andi ljóð­ræna tón­leika á Gljúfra­steini.

Hljóm­sveit­in Umbra flyt­ur ís­lensk þjóðlög í eig­in út­setn­ing­um og frum­sam­ið efni þar sem texti er með­al ann­ars sótt­ur í mið­alda­bók­mennt­ir. Í brenni­depli verð­ur efni af plöt­unni Bjargrún­ir auk nýs efn­is. Á tón­leik­un­um mega gest­ir eiga von á ná­inni stund þar sem kafað verð­ur ofan í sagna­arf­inn og ís­lenska ljóða­gerð í tón­um og tali.

Umbra hef­ur hlot­ið lof gagn­rýn­enda fyr­ir ein­stak­an hljóm og framúrsk­ar­andi út­setn­ing­ar á þjóðlaga­tónlist. Hljóm­sveit­in var stofn­uð árið 2014 af fjór­um tón­list­ar­kon­um og bland­ar hún sam­an ís­lenskri þjóðlaga­tónlist, mið­alda­tónlist og frum­sam­dri tón­smíð í til­finn­inga­rík­um, vand­lega út­færð­um flutn­ingi. Þær hafa spilað á fjöl­mörg­um há­tíð­um í Evr­ópu, Asíu og gef­ið út fimm plöt­ur, en Plat­an Solstiti­um frá 2018 var valin plata árs­ins hjá Ís­lensku tón­list­ar­verð­laun­un­um.

Með­lim­ir Umbru:

Al­ex­andra Kj­eld er klass­ískt mennt­að­ur strengja­leik­ari og tón­listar­fræð­ing­ur sem starf­ar við flutn­ing og fram­leiðslu.

Arn­gerð­ur María Árna­dótt­ir er pí­anó­leik­ari og tón­skáld, þekkt fyr­ir störf sín við kirkju­tónlist, kór­a­út­setn­ingu, ný­lega hef­ur hún einn­ig kom­ið að gerð kvik­mynda­tón­list­ar.

Guð­björg Hlín Guð­munds­dótt­ir er fjöl­hæf­ur fiðlu­leik­ari með ræt­ur í barokk-, þjóðlaga- og ind­ie-tónlist, sem hef­ur með­al ann­ar spilað með hljóm­sveit­inni Sig­ur Rós

Lilja Dögg Gunn­ars­dótt­ir er mezzósópr­an sem sér­hæf­ir sig í skap­andi kór­stjórn, fornri tónlist, eig­in út­setn­ing­um og ein­söng. Hún stjórn­ar með­al ann­ars Kvennakórn­um Kötlu með Hildigunni Ein­ars­dótt­ur.

Að­gangs­eyr­ir er 3.900 kr. og eru mið­ar seld­ir í af­greiðslu Gljúfra­steins á tón­leika­degi.

Næg bíla­stæði við Jón­st­ótt.


Mynd: Sunna Ben

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00