Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Gljúfrasteinn

Ver­ið vel­komin til mót­töku og dag­skrár þeg­ar eð­al­bif­reið Lax­ness kem­ur heim að Gljúfra­steini laug­ar­dag­inn 14. júní kl. 16:00. Til­efn­inu verð­ur fagn­að með tónlist, veit­ing­um og stutt­um ræð­um. Jag­ú­ar­inn mun renna í hlað kl. 16:15.

Jag­ú­ar­inn hef­ur tek­ið á móti gest­um Gljúfra­steins á sumrin en und­an­farin ár hef­ur hann ver­ið í alls­herj­ar yf­ir­haln­ingu í Borg­ar­holts­skóla. Yfir 50 nem­end­ur skól­ans hafa unn­ið við bíl­inn af mikl­um metn­aði und­ir dyggri hand­leiðslu fag­kenn­ara og er hann nú orð­inn eins og nýr. Jag­ú­ar­inn er ár­gerð 1968.

Halldór og Auð­ur Lax­ness voru mik­ið smekk­fólk á hönn­un og voru fal­leg­ir bíl­ar ekki und­an­skild­ir. Lax­ness hafði sterk­ar skoð­an­ir á út­liti bíls­ins og vildi fá hann rjóma­hvít­an, alls ekki hvít­an, og leið­rétti fólk gjarn­an ef því yf­ir­sást þessi blæ­brigða­mun­ur.

Marg­ir hafa kom­ið að þessu góða sam­starfs­verk­efni. Þar má nefna B&L sem lögðu til vara­hluti, vinnu við vél, að­stöðu og þekk­ingu; Poul­sen sem lögðu til allt efni svo hægt væri að sprauta bíl­inn; Stólpa gáma sem lán­uðu gám; auk áhuga­fólks sem hef­ur stutt verk­efn­ið með ráð­um og dáð. Þar hef­ur far­ið fremst­ur Rík­arð­ur Már Ríkarðs­son, um­sjón­ar­mað­ur Jag­ú­ars­ins, sem hef­ur hald­ið utan um verk­efn­ið fyr­ir hönd Gljúfra­steins.

Ver­ið vel­komin á Jag­ú­ar­fögn­uð á Gljúfra­steini á laug­ar­dag­inn kl. 16:00.


Bíla­stæði

Fyr­ir gesti er bíla­stæði við veg­inn fyr­ir neð­an Gljúfra­stein. Þeg­ar mik­ið er um að vera á safn­inu eru þau stæði þó yf­ir­leitt fljót að fyll­ast. Þá er hægt að leggja í stæði sem eru hinum meg­in við Köldu­kvísl fram­an við Jón­st­ótt. Til að kom­ast að þeim verð­ur að beygja upp af­leggj­ar­ann til hægri, áður en kom­ið er að Gljúfra­steini ef keyrt er frá Reykja­vík, sem merkt­ur er Helga­dal. Ekið er upp Jón­st­ótt­ar­veg.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00