Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Gljúfrasteinn

Ver­ið hjart­an­lega vel­komin á tón­leika með einni ást­sæl­ustu söng­konu þjóð­ar­inn­ar, Guð­rúnu Gunn­ars­dótt­ur. Tón­leik­arn­ir eru hluti af ár­legri sum­ar­dagskrá þar sem tónlist ómar í stof­unni eins og á dög­um Lax­ness­hjón­anna.

Með Guð­rúnu verða Gunn­ar Gunn­ars­son pí­anó­leik­ari og Þor­grím­ur „Toggi“ Jóns­son kontrabassa­leik­ari.

Þau munu flytja lög eft­ir skandi­nav­ísk söngvaskáld, þar á með­al norsku systkin­in Kari, Ola og Lars Brem­nes, hol­lensk-sænska söngvaskáld­ið Cornel­is Vr­eesjwiik og hina finnsku Ernu Tauro. Text­arn­ir eru eft­ir Að­al­stein Ás­berg Sig­urðs­son skáld.

Gunn­ar Gunn­ars­son er mik­ilsvirt­ur org­ell­eik­ari, pí­anó­leik­ari og kór­stjóri, þekkt­ur fyr­ir ný­stár­leg­ar leið­ir að kirkju­tónlist, djass og kórút­setn­ing­um. Hann hef­ur gef­ið út fjöl­marg­ar hljóm­plöt­ur, unn­ið með fremstu tón­list­ar­mönn­um lands­ins og starf­ar nú sem org­ell­eik­ari Frí­kirkj­unn­ar í Reykja­vík.

Þor­grím­ur „Toggi“ Jóns­son er kunn­ur kontrabassa­leik­ari úr djass­heim­in­um sem nam fræði sín hér heima og við Kon­inklijk Conservatori­um í Haag í Hollandi. Hann hef­ur leik­ið með ógrynni djass­sveita, -tríóa og –kvart­etta ásamt því að gefa út eig­ið efni.

Guð­rúnu Gunn­ars­dótt­ur þarf vart að kynna en hún hef­ur átt far­sæl­an fer­il sem söng­kona og fjöl­miðla­kona í um 40 ár. Hún hef­ur víða kom­ið við og sung­ið inn á um tvö hundruð plöt­ur með ýmsu lista­fólki, átt vin­sæl lög á mörg­um safn­plöt­um og sung­ið í söng­leikj­um. Hún hef­ur gef­ið út sex sóló­plöt­ur og þrjár plöt­ur með Frið­riki Óm­ari Hjör­leifs­syni, en tvær þeirra seld­ust í yfir 10.000 ein­tök­um.

Að­gangs­eyr­ir er 3.900 kr. og eru mið­ar seld­ir í af­greiðslu Gljúfra­steins á tón­leika­degi.

Hjart­an­lega vel­komin á nota­lega tón­leika í stof­unni á Gljúfra­steini!


Bíla­stæði

Fyr­ir gesti er bíla­stæði við veg­inn fyr­ir neð­an Gljúfra­stein. Þeg­ar mik­ið er um að vera á safn­inu eru þau stæði þó yf­ir­leitt fljót að fyll­ast. Þá er hægt að leggja í stæði sem eru hinum meg­in við Köldu­kvísl fram­an við Jón­st­ótt. Til að kom­ast að þeim verð­ur að beygja upp af­leggj­ar­ann til hægri, áður en kom­ið er að Gljúfra­steini ef keyrt er frá Reykja­vík, sem merkt­ur er Helga­dal. Ekið er upp Jón­st­ótt­ar­veg.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00