Menningarvor í Mosfellsbæ er haldið árlega. Dagskrá hátíðarinnar fer fram á Bókasafni Mosfellsbæjar tvö þriðjudagskvöld í apríl og hefst kl. 20:00 bæði kvöldin.
Bókasafn Mosfellsbæjar ásamt tónlistardeild Listaskólans og Leikfélagi Mosfellsveitar stendur fyrir metnaðarfullri tónlistar- og menningardagskrá þar sem mosfellskir listamenn koma fram.
Aðgangur er ókeypis á alla viðburði.