Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
  • Gleði­lega bæj­ar­há­tíð 2014

    Bæj­ar­há­tíð­in, Í tún­inu heima, verð­ur hald­in í ell­efta sinn um helg­ina.

  • Langi­tangi lok­að­ur vegna vega­fram­kvæmda

    Vegna mal­bik­un­ar verð­ur Langi­tangi lok­að­ur frá kl 10 í dag, föstu­dag­inn 22. ág­úst og fram eft­ir degi. Langi­tangi er lok­að­ur að hluta eða frá gatna­mót­um á milli Skeið­holts og Bjark­ar­holts og frá Vestu­lands­vegi. Veg­far­end­um sem leið eiga í há­holt og Bjark­ar­holt er bent á að fara inn frá Þver­holti. Tak­mark­an­ir eru á um­ferð með­an á fram­kvæmd­um stend­ur og eru veg­far­end­ur beðn­ir um að sýna að­gát og virða hraða­tak­mark­an­ir.

  • Morg­unakst­ur fram­halds­skóla­nema í Mos­fells­dal

    Þeir fram­halds­skóla­nem­end­ur bú­sett­ir í Mos­fells­dal sem hyggjast nýta morg­un­ferð­ir úr daln­um í vet­ur eru vin­sam­leg­ast beðn­ir um að láta þjón­ustu­ver Mos­fells­bæj­ar vita fyr­ir 31. ág­úst í síma 525 6700 eða með tölvu­pósti á mos[hja]mos.is

  • Frá grunn­skól­um Mos­fells­bæj­ar

    Lága­fells­skóli og Varmár­skóli verða sett­ir mánu­dag­inn 25. ág­úst. Um­sókn­ir vegna frí­stunda­selja og mötu­neyta verða að hafa borist í gegn­um Íbúagátt Mos­fells­bæj­ar fyr­ir 20. ág­úst. Upp­lýs­ing­ar um tíma­setn­ing­ar varð­andi skóla­byrj­un, inn­kaupal­ista og skóla­da­gatal skóla­árs­ins 2014-15 má finna á heima­síð­um skól­anna.

  • Garða­skoð­un Garð­yrkju­fé­lags Ís­lands í Mos­fells­bæ

    Garð­yrkju­fé­lags Ís­lands stend­ur fyr­ir garða­skoð­un í Mos­fells­bæ sunnu­dag­inn 24. ág­úst frá kl. 13-17. Þá munu ýms­ir garð­eig­end­ur í Mos­fells­bæ opna garða sína fyr­ir fé­lags­menn Garð­yrkju­fé­lags­ins og aðra gesti. All­ir eru vel­komn­ir. Ekki skipt­ir máli hvar byrj­að er að skoða en í hverj­um garði verð­ur til taks ljósrit af götu­korti.

  • Opn­un út­boðs

    Þann 12. ág­úst 2014 voru opn­uð til­boð í Tungu­veg – Kvísl­artunga / Vog­ar­tunga og Skeið­holt – Hringtorg við Þver­holt.

  • Tinda­hlaup Mos­fells­bæj­ar 2014

    7 tinda hlaup­ið sem feng­ið hef­ur nýtt nafn, Tinda­hlaup Mos­fells­bæj­ar, fer fram í sjötta sinn laug­ar­dag­inn 30. ág­úst næst­kom­andi.

  • Í tún­inu heima 2014 - Ullarpartý og lita­þema

    Saga ullar­iðn­að­ar á Ís­landi er samofin sögu Mos­fells­bæj­ar. Á bæj­ar­há­tíð Mos­fells­bæj­ar Í tún­inu heima sem hald­in verð­ur dag­ana 29. – 31. ág­úst nk. bjóð­um við í ullarpartý.

  • Lokað vegna mal­biks­fram­kvæmda

    Vegna mal­bik­un­ar verða gatna­mót­in við Langa­tanga, Bo­ga­tanga og Skeið­holt lok­uð í dag, fimmtu­dag­inn 21. ág­úst frá kl. 16.00 og fram eft­ir degi. Hjá­leið er um Álfa­tanga. Tak­mark­an­ir eru á um­ferð með­an á fram­kvæmd­um stend­ur og eru veg­far­end­ur beðn­ir um að sýna að­gát og virða hraða­tak­mark­an­ir.

  • Þró­un­ar- og ný­sköp­un­ar­við­ur­kenn­ing Mos­fells­bæj­ar

    Nú er opið fyr­ir um­sókn­ir um Þró­un­ar- og ný­sköp­un­ar­við­ur­kenn­ingu Mos­fells­bæj­ar. Við­ur­kenn­ing­unni er ætlað að styðja við upp­bygg­ingu á at­vinnu- og frum­kvöðl­a­starf­semi í Mos­fells­bæ. Um­sókn­ar­frest­ur til 1.sept­em­ber næst­kom­andi. Sjá nán­ari upp­lýs­ing­ar hér.

  • Um­mynd­un í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar

    Laug­ar­dag­inn 26. júlí kl. 14 verð­ur opn­uð sýn­ing Þór­dís­ar Jó­hann­es­dótt­ur í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar, Kjarna, Þver­holti 2.

  • Verk­efn­is­lýs­ing deili­skipu­lags - ali­fugla­bú Syðri-Reykj­um

    Markmið með vænt­an­legu deili­skipu­lagi er að gera það mögu­legt að bæta að­stöðu nú­ver­andi ali­fugla­bús með frek­ari bygg­ing­um á lóð­inni. Unnt er að setja fram ábend­ing­ar og at­huga­semd­ir við lýs­ing­una.

  • Strætó­skýl­is teiti í Mos­fells­bæ

    Vikt­or Weiss­happ­el hef­ur ver­ið ráð­inn af Mos­fells­bæ til að mála strætó­skýli bæj­ar­ins.

  • Þús­und gest­ir í Mos­fells­bæ

    Þjóð­dansa­fé­lag­ið, í sam­vinnu við Nor­d­lek, stend­ur fyr­ir nor­rænu þjóð­dansa- og þjóðlaga­móti fyr­ir börn í Mos­fells­bæ daga 9. til 12. júlí nk. BARN­LEK 2014.Föstu­dag­inn 11. júlí klukk­an 13:15 verð­ur far­ið í skrúð­göngu frá Varmár­skóla að Mið­bæj­ar­torgi þar sem dansað verð­ur á nokkr­um stöð­um fram til kl 16:00 og er það von for­svars­manna móts­ins að sem flest­ir muni hafa gleði af því að fylgjast með en einn­ig verð­ur far­ið í heim­sókn á Eir­hamra og dansað þar.

  • Nýtt í Æv­in­týra­garð­in­um

    Sett hef­ur ver­ið upp nýtt 1500 fer­metra hunda­gerði í Ull­ar­nes­brekk­um, í fal­legu um­hverfi Æv­in­týragarðs Mos­fell­inga.

  • Óskað eft­ir til­nefn­ing­um til um­hverfis­við­ur­kenn­inga fyr­ir árið 2014

    Um­hverf­is­nefnd Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­nefn­ing­um til um­hverfis­við­ur­kenn­inga Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2014.

  • Nýtt tíma­bil frí­stunda­á­vís­un­ar hefst í dag

    Frá og með deg­in­um í dag hefst nýtt tíma­bil frí­stundarávís­un­ar í Mos­fells­bæ.

  • Klúbba- og sum­ars­miðj­ur fyr­ir 10 – 12 ára í fé­lags­mið­stöð­inni Ból

    10-12 ára starf­ið hef­ur geng­ið von­um fram­ar í sum­ar. Nú má byrja að skrá sig á mið­viku­dag­ana í júlí. skrán­ing er á bolid@mos.is

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00