Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hélt íbúafund um fjárhagsáætlunMosfellsbæjar 2011 í Hlégarði þann 26. október. Markmið fundarins var að fá umræðu meðal íbúa um leiðir til hagræðingar írekstri Mosfellsbæjar á næsta ári.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hélt íbúafund um fjárhagsáætlunMosfellsbæjar 2011 í Hlégarði þann 26. október. Markmið fundarins var að fá umræðu meðal íbúa um leiðir til hagræðingar írekstri Mosfellsbæjar á næsta ári og hugmyndir sem nýst geta við gerðfjárhagsáætlunar ársins 2011 sem nú er í gangi.
Í upphafi fundar var hálftíma kynning á starfsemi Mosfellsbæjar,verkefnum sveitarfélagsins og forsendum fjárhagsáætlunarinna, sem Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, Halldór Hróarr Sigurðsson endurskoðandi og Pétur J. Lockton fjármálastjóri héldu. Að erindunum loknum voru spurningar úr sal og loks var farið í hópavinnu íbúa.
Lagðar voru fyrir íbúa tvær spurningar: Hvar má spara og hvar má ekki spara? Fjöldi tillaga barst sem birtar hafa verið undir slóðinni mos.is/ibuafundur. Niðurstöðurnar verða birtar hér á vefnum um leið og úrvinnslunni er lokið.
Sjá nánari upplýsingar um íbúafundinn á www.mos.is/ibuafundur. Fólk er áfram hvatt til að senda inn hugmyndir að hagræðingu í gegn um ábendingakerfi á vef Mosfellsbæjar.