Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á deiliskipulagi þriggja frístundalóða í Hamrabrekku, þjóðskrárnúmer 9000-3060.
Gildandi deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn Mosfellsbæjar 11. ágúst 2005. Breytingar felast í því að hámarksstærð frístundahúsa er aukin þannig að þau megi vera allt að 110 m2 að stærð auk 20 m2 geymslu.
Tillöguuppdráttur með greinargerð verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 2. maí 2007 til 30. maí 2007, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar eigi síðar en 13. júní 2007. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
26. apríl 2007
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi – Grenibyggð 2
Á afgreiðslufundi Skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 6. nóvember sl. var samþykkt að grenndarkynna skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Grenibyggðar 2, Mosfellsbæ.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi – Markholt 13
Grenndarkynning – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu, Sveinsstaðir L125058