Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
14. mars 2013

    Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd aug­lýs­ir eft­ir um­sókn­um vegna út­hlut­un­ar styrkja til efni­legra ung­menna sem leggja stund á íþrótt­ir, tóm­stund­ir eða list­ir. Öll ung­menni á aldr­in­um 14 til 20 ára, með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ, sem skara fram úr og hafa sýnt sér­staka hæfi­leika á sínu sviði geta sótt um styrk­inn.

    Styrkir til efnilegra ungmenna_auglýsingÍþrótta- og tóm­stunda­nefnd aug­lýs­ir eft­ir um­sókn­um vegna út­hlut­un­ar styrkja til efni­legra ung­menna sem leggja stund á íþrótt­ir, tóm­stund­ir eða list­ir

    Öll ung­menni á aldr­in­um 14 til 20 ára, með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ, sem skara fram úr og hafa sýnt sér­staka hæfi­leika á sínu sviði geta sótt um styrk­inn. Markmið styrks­ins er tví­þætt:

    • að gefa ein­stak­ling­um sömu tæki­færi og jafn­öldr­um þeirra til að njóta launa frá bæn­um á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tóm­st­und yfir sum­ar­tím­ann.
    • að gefa ein­stak­ling­um tæki­færi til að ein­beita sér frek­ar að list sinni, íþrótt eða tóm­st­und til að ná meiri færni og ár­angri.

    Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd horf­ir til  eft­ir­far­andi þátta þeg­ar styrkj­um er út­hlutað:

    • Um­sögn þjálf­ara, kenn­ara eða ann­ars leið­bein­anda um­sækj­anda þarf að  fylgja með um­sókn­inni. Í um­sögn­inni þurfa að koma fram upp­lýs­ing­ar um ástund­un, hæfi­leika, virkni og fram­komu um­sækj­and­ans.
    • Koma þarf fram í um­sókn­inni með hvaða hætti styrk­ur­inn nýt­ist, hvern­ig hann auð­veldi um­sækj­anda að stunda list sína, íþrótt eða tóm­st­und yfir sum­ar­tím­ann og af hverju  hann sé um­sækj­enda mik­il­væg­ur til að geta stundað æf­ing­ar til að auka færni og ná frek­ari ár­angri
    • Nefnd­in skal gæta jafn­ræð­is við val á styrk­þeg­um bæði hvað varð­ar kyn­ferði sem og milli list­greina og íþrótta- og tóm­stunda­greina. Þessa jafn­ræð­is skal gætt inn­byrð­is við hverja út­hlut­un sem og á milli ára.
    • Ár­lega veit­ir Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd styrki til 3-5 ein­stak­linga, breyti­legt milli ára þar sem kostn­að­ur fer eft­ir aldri styrk­þega.

    Styrk­ur­inn er fólg­inn í laun­um frá Vinnu­skóla Mos­fells­bæj­ar.  Fyr­ir ung­linga á grunn­skóla­aldri er greitt í sam­ræmi við sam­þykkt­an taxta Vinnu­skól­ans.
    Eldri hóp­ur­inn fær  greitt í sam­ræmi við önn­ur sum­ar­átaks­störf hjá Mos­fells­bæ.

    Sjá aug­lýs­ingu hér

    Skila­frest­ur er til og með 14. mars 2013  og skal um­sókn­um ásamt fylgigögn­um skilað í þjón­ustu­ver Mos­fells­bæj­ar, 2. hæð Kjarna, eða ra­f­rænt á mos[hja]mos.is.

    Um­sókn­areyðu­blöð má nálg­ast hér, regl­ur um styrk­veit­ingu og all­ar nán­ari upp­lýs­ing­ar er hægt að nálg­ast á vef Mos­fells­bæj­ar  www.mos.is

    Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00