Sigrún Hjálmtýsdóttir og blásarasextett halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju. Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim að þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Sigrún Hjálmtýsdóttir og blásarasextett halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju þriðjudaginn 11. desember 2012, kl. 20.30.
Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög.
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna hafa verið sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar í hartnær tvo áratugi. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfluttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran, en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og raddar.
Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim að þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, sem leika á klarinettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Árnason.
Miðasala verður í Bæjarskrifstofum í Mosfellsbæ í þjónustuveri á 2. hæð. Þar er hægt að kaupa miða í forsölu frá 3. desember, en einnig er hægt að greiða miðana símleiðis. Vinsamlega hafið samband við Þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700 þar sem miðasala fer fram og allar aðrar upplýsingar um miðasöluna eru veittar.
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar