Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett, í daglegu tali Diddú og drengirnir, halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju þriðjudaginn 7. desember 2010, kl. 20:30.
Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög.
Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett, í daglegu tali Diddú og drengirnir, halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju þriðjudaginn 7. desember 2010, kl. 20:30.
Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög.
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna eru sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar, en tónleikarnir eru nú haldnir þrettánda árið í röð. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfluttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran, en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og raddar. Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim að þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla. |
Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, sem leika á klarinettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Árnason.
Miðasala verður í Bæjarskrifstofum í Mosfellsbæ í þjónustuveri á fyrstu hæð. Þar er hægt að kaupa miða í forsölu frá 1. desember, en einnig er hægt að greiða miðana símleiðis.
Vinsamlega hafið samband við Þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700 þar sem miðasala fer fram og allar aðrar upplýsingar um miðasöluna eru veittar.
Sjá auglýsingu hér
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar