Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett, í daglegu tali Diddú og drengirnir, halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju í kvöld, miðvikudaginn 14. desember, kl. 20:30. Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög. Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna eru sérstakur tónlistarviðburður
Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett, í daglegu tali Diddú og drengirnir, halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju í kvöld, miðvikudaginn 14. desember, kl. 20:30. Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög. Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna eru sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar, en tónleikarnir eru nú haldnir fjórtánda árið í röð. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfluttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran, en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og raddar. Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitarkirkjuna í Mosfellsdal heim af þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, sem leika á klarinettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Árnason.
Miðasala verður í Bæjarskrifstofum í Mosfellsbæ í þjónustuveri á annarri hæð. Þar er hægt að kaupa miða í forsölu frá 5. desember, en einnig er hægt að greiða miðana símleiðis. Vinsamlega hafið samband við þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525 6700 þar sem miðasala fer fram og allar upplýsingar um miðasöluna eru veittar.
Sjá auglýsingu: adventutonleikar.pdf
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar