Þjónustumiðstöð Eirhamra
Í Mosfellsbæ er þjónustuklasi fyrir eldri borgara að Hlaðhömrum 2 við Langatanga. Þar er að finna Eirhamra, 54 öryggisíbúðir reknar af Eir hjúkrunarheimili. Við hlið Eirhamra rekur Eir einnig Hamra hjúkrunarheimili en þar eru 30 rými með fyrsta flokks aðstöðu.
Forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Eirhamra veitir upplýsingar um þjónustuna í síma 566-8060 frá kl. 10:00 – 12:00 alla virka daga.
Hádegismatur
Hægt er að kaupa máltíðir í hádeginu alla daga í Þjónustumiðstöð Eirhamra.
Heimsending á matarbökkum er í boði alla daga vikunnar og bætist þá sendingargjald við máltíðina. Mikilvægt er að panta heimsendingu með fyrirvara.
Hægt er að sækja um heimsendingu á matarbökkum á þjónustugátt Mosfellsbæjar, undir Umsóknir en þar er að finna umsókn um stuðningsþjónustu.
Afpöntun á heimsendingu þarf að berast með a.m.k. dags fyrirvara í s. 897-9561 til að koma í veg fyrir matarsóun og rukkun.
Matseðill
Laugardagur 20. apríl
Soðin ýsa með soðnum kartöflum, soðnu grænmeti og feiti. Rjómalagður grjónagrautur.
Sunnudagur 21. apríl
Heimasteiktar lambakótilettur með brúnuðum kartöflum, rauðkáli og rjómasósu. Niðursoðnar perur með rjóma.
Mánudagur 22. apríl
Ofnsteiktar fiskibollur með kartöflum, hrísgrjónum og karrýsósu. Kakósúpa með tvíbökum.
Þriðjudagur 23. apríl
Hakkað buff með gufusoðnum kartöflum, brokkolíblöndu og lauksósu. Rjómalöguð sveppasúpa.
Miðvikudagur 24. apríl
Smjörsteiktur þorskur með kartöflum, gufusoðnu grænmeti og laukfeiti. Rjómalöguð tómatsúpa.
Fimmtudagur 25. apríl – Sumardagurinn fyrsti
Hægelduð grísasteik með brúnuðum kartöflum, rauðkáli og piparsósu. Kaldur jarðarberjagrautur.
Föstudagur 26. apríl
Ofnsteiktar hakkbollur með kartöflum, grænmeti og lauksósu. Heimilisjógúrt.
Laugardagur 27. apríl
Gufusoðin ýsa með blómkáli, kartöflum og feiti. Rjómalagaður grjónagrautur með kanil.
Sunnudagur 28. apríl
Ofnsteikt kjúklingasnitsel með brúnuðum kartöflum, maískorni og rjómasósu. Kaldur búðingur.
Matseðillinn getur breyst án fyrirvara.
Félagsstarf
Félagsstarf eldri borgara og Félag aldraðra í Mosfellsbæ sameiginlega dagskrá félagsstarfsins hjá Þjónustumiðstöð aldraðra á Eirhömrum og í bæjarblaðinu Mosfellingi. Í dagskránni er að finna fjölbreytt námskeið og hópa sem eru opnir öllum áhugasömum.
Listsköpun, handmennt, spilamennska, kórstarf, leikfimi, sund og ferðalög eru dæmi um starfsemina.
Opnunartími
- Mánudagar kl. 11:00-16:00
- Þriðjudagar kl. 11:00-16:00
- Miðvikudagar kl. 11:00-16:00
- Fimmtudagar kl. 11:00-16:00
- Föstudagar kl. 13:00-16:00
Handavinnuleiðbeinandi verður á staðnum alla daga nema föstudaga.
Opnunartími gæti breyst þegar sumarfrí starfsmanna standa yfir.
Nánari upplýsingar
Elva Björg Pálsdóttir (gsm: 698-0090), forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara, veitir allar upplýsingar um félagsstarfið og skráningar á námskeið og í ferðir.
- Elva er með símatíma alla virka daga frá kl. 13:00-16:00, í síma 586-8014
- Einnig er hægt að senda Elvu póst, elvab[hja]mos.is
Heilsa og hugur í Mosfellsbæ
12. vikna námskeið í íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Frístundaávísun fyrir 67 ára og eldri
Upphæð frístundaávísunar fyrir árið 2023 er kr. 11.000.- og er tímabilið frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.
Umsækjandi þarf að vera með lögheimili í Mosfellsbæ. Sótt er um frístundaávísunina á Íbúagátt Mosfellsbæjar. Skila þarf inn kvittun fyrir útlögðum kostnaði vegna þátttökugjalda með umsókninni eða í Þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2.
Greiðslur eru lagðar inn á reikning umsækjanda eftir að umsókn og gildri kvittun hefur verið skilað inn. Kvittun skal ekki vera eldri en 6 mánaða. Greitt er út fyrir 15. hvers mánaðar, alla mánuði ársins nema júlí.
Hreyfi- og tómstundatilboð eða námskeið skulu að lágmarki vara í 4 vikur og vera stýrt af viðurkenndum leiðbeinendum eða kennurum.
Leiðbeiningar
- Fara á þjónustugátt Mosfellsbæjar.
- Skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
- Velja flokkinn „Umsóknir“.
- Velja „Ýmsar umsóknir og erindi“.
- Velja „Frístundaávísun 67 ára og eldri“.
- Fylla út umsóknina.
- Setja greiðslukvittun sem viðhengi við umsóknina. Ef kvittunin er bara til á pappír þarf að fara í Þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð, og afhenda kvittunina þar.
- Smella á hnappinn „Senda umsókn“.
Upplýsingar um þjónustu
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis
Stuðningsþjónusta
Öldungaráð
Gjaldskrár
Reglur og samþykktir
- Reglur og samþykktir ›Afsláttur af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega
- Reglur og samþykktir ›Akstursþjónusta fyrir eldri borgara
- Reglur og samþykktir ›Dagdvöl aldraðra
- Reglur og samþykktir ›Sérstakur húsnæðisstuðningur
- Reglur og samþykktir ›Stuðningsþjónusta