Í Mosfellsbæ byggja lífsgæði íbúa á ræktun lýðheilsu fyrir alla í sátt við umhverfið
Umgjörð til tómstundaiðju í Mosfellsbæ er einstök á landsvísu og hvetur fólk á öllum aldri til þátttöku í íþróttum, hreyfingu, útivist og annarri tómstundastarfsemi. Mosfellsbær er eftirsóknarvert bæjarfélag til búsetu vegna sjálfbærrar nýtingar náttúru og umhverfis til útivistar fyrir alla, frábærrar aðstöðu og framúrskarandi íþrótta- og tómstundastarfsemi.
Leiðarljós
Mosfellsbær hefur að leiðarljósi öflugar forvarnir í sveitarfélaginu með breiðri samvinnu íþrótta- og tómstundafélaga og annarra aðila sem málið snertir. Þannig stuðla samræmdar aðgerðir innan bæjarfélagsins að bættri lýðheilsu íbúanna. Mosfellsbær veitir öllum jöfn tækifæri til að eflast og þroskast óháð aldri, uppruna, efnahag og kynferði og vinnur þannig gegn fordómum.
Meginmarkmið
Mosfellsbær skapi bæjarbúum tækifæri til bættra lífsgæða með fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar, útiveru, iðkunar íþrótta og annarrar afþreyingar og tómstundaiðju. Mosfellsbær verði í fararbroddi sveitarfélaga með samþættingu tómstundastarfs og faglega uppbyggingu íþrótta- og félagsstarfs í samræmi við lýðheilsusjónarmið.
Meginflokkar
Stefnan byggir á fjórum megin flokkum þar sem sett eru markmið og leiðir að þeim markmiðum í köflum 1. til 4. Í köflum 5 til 7 er fjallað um gildi sem félögum og félagasamtökum er gert að huga að við starf sitt og er forsenda stuðnings Mosfellsbæjar.
Flokkar eru þessir:
- Almennt um íþróttir og tómstundir
- Íþróttafélög
- Tómstundir og tómstundafélög
- Útivist
- Jafnrétti og jafnræði
- Lýðræði
- Lýðheilsa og forvarnir
1. Almennt um íþróttir og tómstundir
Að Mosfellsbær verði í fararbroddi sveitarfélaga, um faglega uppbyggingu íþrótta og félagsstarfs í samræmi við lýðheilsustefnu bæjarfélagsins. Að þátttaka almennings í íþróttum og tómstundum í bænum sé almenn og til eftirbreytni.
1.1 Að auka þátttöku allra íbúa í íþróttum, tómstundum og útivist.
1.2 Að efla lýðheilsu íbúanna og stuðla að aukinni hreyfingu almennings í bænum.
1.3 Að stuðlað verði að framþróun íþrótta- og tómstundastarfs í bæjarfélaginu og aðstaða til iðkunar sé eins og best gerist. Forgangsröðun uppbyggingar mannvirkja verði unnin í samráði við íbúa, hagsmunaðila og íþrótta- og tómstundafélög bæjarins.
1.4 Að stjórnun og nýting íþróttamannvirkja bæjarins sé eins og best verður á kosið og í samræmi við leiðarljós íþróttastefnu Mosfellsbæjar.
1.1.1 Að skapa gott aðgengi að íþróttamannvirkjum og útivistaraðstöðu fyrir alla.
1.1.2 Að hvetja bæjarbúa til þátttöku í íþróttum, tómstundum og útivist.
1.2.1 Skapa bæjarbúum aðstæður til íþrótta- og útivistar óháð aldri og getu.
1.2.2 Eiga samstarf við íþróttafélögin um þátttöku fatlaðra í starfinu og auðvelda aðgengi þeirra að íþróttamannvirkjum.
1.2.3 Stuðla að almennum lýðheilsuverkefnum í samvinnu við hagsmunaaðila.
1.3.1 Koma á fót samráðsvettvangi þar sem leitast verður við að greina og leggja mat þarfir íþrótta- og tómstundafélaga fyrir aðstöðu til að sinna hlutverki sínu, til lengri og skemmri tíma.
1.4.1 Stofnanir sveitarfélagsins á íþrótta- og tómstundasviði setji sér gæðamarkmið og geri grein fyrir þeim í starfsáætlunum sínum.
1.4.2 Nýting íþróttaaðstöðu verði sem best og íþróttafélög hvött til að setja sér markmið í samræmi við leiðarljós íþróttastefnu bæjarins, m.a. útleigu aðstöðu innan íþróttafélaga.
1.4.3 Íþrótta- og tómstundsvið komi að skipulagi og uppbyggingu opinna svæða sem hugsuð eru til leik- og útivistar í Mosfellsbæ.
2. Íþróttafélög
Að Mosfellsbær skapi umhverfi fyrir heilbrigt starf íþróttafélaga.
2.1 Að íþróttafélög í Mosfellsbæ setji sér stefnu um starf sitt sem taki til barna og unglinga, og annarra aldurshópa og afreksstarfs.
2.2 Að íþróttafélögin starfi samkvæmt stefnuyfirlýsingu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga og stefni að því að fá viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag.
2.3 Að börn og unglingar geti kynnst starfi félaganna í samræmi við leiðarljós íþrótta- og tómstundastefnu Mosfellsbæjar.
2.4 Að Mosfellsbær sé bakhjarl í barna- og unglingastarfi félaganna.
2.5 Að leitast við að flétta saman íþrótta- og tómstundastarf við starf leik-, grunn,- og framhaldsskóla.
2.1.1. Að fylgjast með að stefna sé gerð og birta hana á vef bæjarins.
2.1.2. Í stefnum félaganna komi fram áætlun um forvarnir gegn einelti, áreitni og vanlíðan og að neysla áfengis, tóbaks eða fíkniefna eigi aldrei samleið með iðkun íþrótta, sbr. stefnu ÍSÍ og sbr. kafla 7.
2.2.1 Að fylgjast með að starf íþróttafélaga sé í samræmi við stefnuyfirlýsingu ÍSÍ.
2.3.1 Að halda áfram að styðja við fjölskyldur með frístundagreiðslum.
2.3.2 Að bærinn beini því til félaga bæjarins að stilla þátttökugjöldum í hóf, sérlega fyrstu ár barna í íþrótta- og tómstundastarfi, samhliða því að styðja sérstaklega barna- unglinga og afreksstarf, sbr. 2.3.1, 2.4.1 og 2.4.2.
2.4.1 Að íþrótta- og tómstundafélög hafi afnot að íþróttamannvirkjum bæjarins án endurgjalds fyrir barna-, unglinga og afreksstarf. Slík afnot skulu verðmetin og gerður um það samningur.
2.4.2 Að bærinn styðji fjárhagslega við barna-, unglinga- og afreksstarf og geri um það sérstakan samning.
2.5.1 Að bærinn vinni með félögunum að áframhaldandi þróun íþróttafjörs fyrir yngstu bekki grunnskólans og elstu börnum leikskólanna.
2.5.2 Að tengja saman stundatöflur grunnskóla og íþróttastarfs og stuðla þannig að heilstæðum skóladegi barna og ungmenna.
2.5.3 Að eiga samstarf við framhaldsskóla um lýðheilsuverkefni sem grundvallast á þörfum ungs fólks fyrir heilbrigt íþrótta- og tómstundastarf, t.a.m. með því að styðja við uppbyggingu Íþróttaakademíu.
3. Tómstundir og tómstundafélög
Að Mosfellsbær skapi umhverfi sem hvetur íbúa til þátttöku í heilbrigðu tómstundastarfi.
3.1 Að allir íbúar Mosfellsbæjar geti tekið þátt í tómstundastarfi og haft áhrif á þróun þess.
3.2 Að styðja við það starf sem þegar er og leita nýrra leiða í tómstundastarfi.
3.3 Að öll börn og unglingar geti kynnst starfinu og tekið þátt í samræmi við leiðarljós íþrótta- og tómstundastefnu Mosfellsbæjar.
3.4 Að styðja við uppbyggingu útivistar- og tómstundaaðstöðu í bænum.
3.1.1 Að leitast við að mæta óskum allra félaga, samtaka og einstaklinga sem hafa það markmið að stuðla að öflugu tómstundastarfi.
3.1.2 Að styðja sérstaklega við félög til að mæta óskum bæjarbúa sem þarfnast sérstaks stuðnings.
3.2.1 Að tómstundasvið safni saman upplýsingum um það starf sem þegar fer fram og hvort þurfi að styðja frekar við það samhliða því að leita að hugmyndum um nýjungar í tómstundum.
3.2.2 Að tómstundasvið hafi frumkvæði að stofnun tómstundabandalags í bænum, sem verði samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka og
bæjarins sem vinni að því að efla samstarf og faglegt starf félaganna.
3.3.1 Að halda áfram að styðja við fjölskyldur með frístundagreiðslum.
3.3.2 Að félagsmiðstöðvar bæjarins verði aðdráttarafl fyrir þau ungmenni bæjarins sem kjósa samveru og afþreyingu. Þar sé lögð áhersla á að neysla
áfengis, tóbaks eða fíkniefna eigi aldrei samleið með tómstundastarfi.
3.3.3 Félögin skrái stefnu og hluti hennar sé áætlun um forvarnir gegn einelti, áreitni og vanlíðan.
3.4.1 Að haldið verði áfram uppbyggingu á útivistasvæðinu við Hafravatn.
3.4.2 Könnuð verði þörf fyrir tómstundaaðstöðu í bænum, sbr. 1.3.1, þar sem horft er til allra aldurshópa og að sem flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
4. Útivist
Að Mosfellsbær skapi aðstæður innan bæjarmarkanna sem hvetur íbúa til útivistar og að uppbygging mannvirkja og aðstöðu taki mið af sjálfbærri þróun.
4.1 Að auka ánægju og efla útiveru og –vist allra bæjarbúa samhliða því að tryggja öryggi bæjarbúa á göngu- og hjóla og reiðstígum.
4.2 Að bæta útivistaraðstöðu innan bæjarmarkanna og byggja áfram upp göngu- hjóla og reiðstíga.
4.1.1 Að kynna fyrir bæjarbúum möguleika til útvistar og hollrar útiveru.
4.1.2 Að styðja við hópa sem skipuleggja göngu- hjóla- og hlaupaferðir í bænum og að Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar verði miðstöðvar fyrir hópana.
4.1.3 Að við hönnun og viðhald mannvirkja, sem ætluð eru til útivistar, sé horft til öryggis þeirra sem um þau fara.
4.1.4 Að styðja áfram við skipulagningu og merkingu gönguleiða um fell og dali í nágrenni bæjarins og tryggja góðar samgöngur á vinsæla útivistarstaði í Mosfellsbæ.
4.2.1 Að vinna að uppbyggingu gönguleiða, að leiðarlýsingar séu góðar og leiðir vel merktar.
4.2.2 Að tengja göngu- og hjólreiðarstíga svo samfella verði í uppbyggingu þeirra innan bæjarins og við önnur sveitarfélög.
4.2.3 Að gerð sé áætlun um uppbyggingu og viðhald göngu- hjóla og reiðstíga og samhliða sé hugað að lýsingu, þar sem það á við, með sem minnstri ljósmengun, fjölgun setbekkja og hverju öðru sem eykur öryggi og ánægju þeirra sem um stígana fara.
4.2.4 Að halda áfram uppbygging útivistaraðstöðu við Hafravatn í samvinnu við hagsmunaaðila.
5. Jafnrétti - Jafnræði
Við framkvæmd íþrótta- og tómstundastefnu skal hafa til hliðsjónar leiðarljós stefnunnar um jöfn tækifæri og stuðla þannig að jafnræði og jafnrétti.
Í 18. grein jafnréttislaga er kveðið á um að fyrirtæki, stofnanir, íþróttafélög og félagasamtök setji sér jafnréttisáætlun. Mikilvægt er að félög sem starfa í bænum hafi þetta að leiðarljósi og lög nr. 10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla.
Til að mæta þessu frekar mun Mosfellsbær:
- Gera kröfu til Íþrótta- og tómstundafélaga að þau setji sér jafnréttisáætlun.
- Safna upplýsingum um þátttöku barna og unglinga í bænum skipt eftir kynjum og íþróttagreinum.
- Rannsaka á þriggja ára fresti stöðu kynjanna með tilliti til aðgangs að íþróttum og tómstundum svo unnt sé að meta frekar hvernig unnt er að taka mið af kynjasjónarmiðum við skipulag og framkvæmd frístundastarfs.
- Beina því til félaganna að gæta þess að börn, foreldrar og forráðamenn hafi jafnan aðgang að upplýsingum í samræmi við leiðarljós íþrótta- og tómstundastefnu Mosfellsbæjar.
- Mosfellsbær er tilbúinn að mæta óskum félaganna um fræðslu vegna jafnréttismála, sé þess óskað,
6. Lýðræði
Leiðarljós lýðræðisstefnu bæjarins er að virkja íbúa til þátttöku í málefnum og stefnumótun. Þannig er leitast við að tryggja frekari samstöðu um stefnu og ákvarðanir.
Í því ljósi er stefnt að því að:
- Hvetja félögin til að tryggja ungmennum sæti í stjórnum þeirra.
- Horfa til og leita eftir sjónarmiðum ungs fólks í gegnum Ungmennaráð Mosfellsbæjar, Bólráð félagsmiðstöðva og áherslum ungmenna í stjórnum
félaga bæjarins. - Samningar við íþrótta- og tómstundafélög sé ítarlegir og aðgengilegir á vef bæjarins.
- Stefnumótun og/eða framkvæmdir á vegum bæjarins í tengslum við mannvirki vegna íþrótta- og tómstunda verði kynnt tímanlega og unnin með íbúum og hagsmunaaðilum.
- Hafa á þriggja ára fresti íþrótta- og tómstundaþing þar sem bæjarbúar hafa tækifæri til að tjá sig og koma á framfæri sínum óskum.
- Mosfellsbær er tilbúinn að mæta óskum félaganna um fræðslu um lýðræði og lýðræðislega stefnumótun, sé þess óskað.
7. Lýðheilsa og forvarnir
Mosfellsbær hefur að leiðarljósi öflugar forvarnir í sveitarfélaginu með breiðri samvinnu íþrótta- og tómstundafélaga og annarra aðila sem málið snertir. Þannig stuðla samræmdar aðgerðir innan bæjarfélagsins að bættri lýðheilsu íbúanna.
Mosfellsbær beinir því til einstaklinga, félaga og félagasamtaka á íþrótta- og tómstundasviði að veita öllum jöfn tækifæri til að eflast og þroskast í gegnum íþróttir og tómstundir, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, aldri, kynferði, uppruna, efnahag og menningu og kenna þannig virðingu og umhyggju og vinna gegn fordómum.
Öflugt forvarnarstarf er mikilvægt til að unglingar rati á heilbrigðar brautir í lífinu. Íþrótta- og tómstundastarf er til þess fallið að minnka líkur á félagslegra einangrun og eykur samfélagslega ábyrgð og virkni einstaklinga. Með samstarfi og fræðslu til barna- og ungmenna, fjölskyldna og annarra sem að starfa með börnum bæjarins er lagður grundvöllur að sterkari samfélagsvitund og ábyrgð allra bæjarbúa.
Mosfellsbær tekur undir stefnu ÍSÍ um að neysla áfengis, tóbaks eða fíkniefna eigi aldrei samleið með iðkun íþrótta. Mikilvægt er að félög bæjarins setji í lög sín og stefnu ákvæði sem samrýmist stefnu ÍSÍ móti starfsreglur um hvernig tekið skuli á fíkniefnavanda ungs fólks á vettvangi íþróttahreyfingarinnar og hvernig unnið skuli að forvörnum. Það sama gildir um aðrar tómstundir.
Mosfellsbær leggur áherslu á efla lýðheilsu allra aldurshópa og ætlar að efla íþrótta- og tómstundastarf eldri borgara í bænum með það að markmiði að viðhalda og bæta heilbrigði og auka lífsgæði þeirra.
Mosfellsbær leggur áherslu á heilbrigt íþrótta- og tómstundastarf sem hefur forvarnir og almenna lýðheilsu að leiðarljósi og til að tryggja það frekar mun bærinn:
- Rannsaka á þriggja ára fresti einelti, áreitni og vanlíðan barna og unglinga í íþrótta- og tómstundasatarfi í Mosfellsbæ til að bæta líðan barna og gæði starfsins. Í framhaldi hverrar rannsóknar gera áætlanir um viðbrögð og þær kynntar á vef bæjarins.
- Rannsaka á þriggja ára fresti þátttöku eldri borgar í íþrótta- og tómstundastarfi og gera áætlun sem taki til þess að mæta óskum þeirra um fjölbreytt starf og bæta líðan.
- Stuðla að breiðri samstöðu um lýðheilsu og forvarnir með því að taka þátt í samráði og virkum verkefnum með félögum, félagasamtökum, stofnunum bæjarins og öðrum sem málið varðar sem snúa að lýðheilsu og forvörnum.
- Mosfellsbær er tilbúinn að mæta óskum um fræðslu um lýðheilsu, forvarnir og liðsinna við gerð stefnu félaga í bænum og veita aðstoð við úrlausnir ef og þegar þess er óskað.