Mál númer 202506313
- 25 month-5 2025
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #875
Kosning forseta og 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga og 5. gr. samþykktar um stjórn Mosfellsbæjar, til eins árs.
Tillaga kom fram um að Örvar Jóhannsson, bæjarfulltrúi B lista Framsóknarflokks, gegni embætti forseta bæjarstjórnar til eins árs frá og með næsta fundi bæjarstjórnar. Ekki komu fram aðrar tillögur og taldist tillagan því samþykkt.
Tillaga kom fram um að Lovísa Jónsdóttir, bæjarfulltrúi C lista Viðreisnar, gegni embætti 1. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs frá og með næsta fundi bæjarstjórnar. Ekki komu fram aðrar tillögur og taldist tillagan því samþykkt.
Tillaga kom fram um að Dagný Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi L lista Vina Mosfellsbæjar, gegni embætti 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs frá og með næsta fundi bæjarstjórnar. Ekki komu fram aðrar tillögur og taldist tillagan því samþykkt.