Mál númer 202506311
- 25 month-5 2025
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #875
Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar frá 26. júní til og með 19. ágúst 2025, með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga, sbr. og 4. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Mosfellsbæjar. Jafnframt er lagt til að bæjarstjórn veiti bæjarráði umboð til fullnaðarafgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga og 44. gr. samþykkta um stjórn Mosfellsbæjar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, samanber og 4. mgr. 8. gr. samþykkta um stjórn Mosfellsbæjar, að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar frá 26. júní til og með 19. ágúst 2025. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi er ráðgerður 20. ágúst 2025.
Með vísan til 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga, sbr. og 44. gr. samþykktar um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir bæjarstjórn að veita bæjarráði umboð til fullnaðarafgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur.