jumpToMain
mos.is - home

Mál númer 202404054

  • 23 month-4 2025

    Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #631

    Borist hef­ur um­sókn um fram­kvæmda­leyfi frá verk­efna­stjóra eigna­sjóðs Mos­fells­bæj­ar, dags. 15.05.2025, vegna grennd­ar­stöðv­ar við Skála­hlíð. Setja á upp grennd­ar­stöð með sex gám­um auk nýrr­ar að­komu og frá­gangs. Fram­kvæmd­ir eru í sam­ræmi við fyr­ir­liggj­andi hönn­un­ar­gögn og stað­festa deili­skipu­lags­breyt­ingu, dags. 27.02.2025.

    • 19 month-4 2025

      Af­greiðslufund­ur skipu­lags­full­trúa #95

      Borist hef­ur um­sókn um fram­kvæmda­leyfi frá verk­efna­stjóra eigna­sjóðs Mos­fells­bæj­ar, dags. 15.05.2025, vegna grennd­ar­stöðv­ar við Skála­hlíð. Setja á upp grennd­ar­stöð með sex gám­um auk nýrr­ar að­komu og frá­gangs. Fram­kvæmd­ir eru í sam­ræmi við fyr­ir­liggj­andi hönn­un­ar­gögn og stað­festa deili­skipu­lags­breyt­ingu, dags. 27.02.2025.

      Með vís­an í af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi út­gáfu fram­kvæmda­leyf­is í sam­ræmi við 13. og 15. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og reglu­gerð um fram­kvæmda­leyfi nr. 772/2012, mun hann ann­ast út­gáfu þess. Leyfi er veitt á grund­velli gild­andi skipu­lags.

      • 5 month-1 2025

        Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #865

        Lögð er fram til af­greiðslu deili­skipu­lags­breyt­ing fyr­ir Skála­hlíð vegna nýrr­ar grennd­ar­stöð­ar í sam­ræmi við áætlun um fjölg­un grennd­ar­stöðva og inn­leið­ingu hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Breyt­ing­in hef­ur hlot­ið með­ferð í sam­ræmi við 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an var tekin til um­fjöll­un­ar eft­ir aug­lýs­ingu á 622. fundi nefnd­ar­inn­ar.

        Af­greiðsla 624. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar stað­fest á 865. fundi bæj­ar­stjórn­ar með 11 at­kvæð­um.

        • 31 month-0 2025

          Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #624

          Lögð er fram til af­greiðslu deili­skipu­lags­breyt­ing fyr­ir Skála­hlíð vegna nýrr­ar grennd­ar­stöð­ar í sam­ræmi við áætlun um fjölg­un grennd­ar­stöðva og inn­leið­ingu hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Breyt­ing­in hef­ur hlot­ið með­ferð í sam­ræmi við 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an var tekin til um­fjöll­un­ar eft­ir aug­lýs­ingu á 622. fundi nefnd­ar­inn­ar.

          Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust sam­þykk­ir skipu­lags­nefnd með fimm at­kvæð­um fyr­ir­liggj­andi deili­skipu­lagstil­lögu. Deili­skipu­lag­ið skal hljóta af­greiðslu skv. 42. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

        • 8 month-0 2025

          Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #863

          Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 616. fundi sín­um að kynna deili­skipu­lags­breyt­ingu við Skála­hlíð í Hlíða­hverfi, í sam­ræmi við 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an fel­ur í sér að koma fyr­ir grennd­ar­stöð í sam­ræmi við áætlun um fjölg­un grennd­ar­stöðva og inn­leið­ingu hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Til­lag­an var aug­lýst og gögn gerð að­gengi­leg á vef Mos­fells­bæj­ar, mos.is, Skipu­lags­gátt­inni, Lög­birt­inga­blað­inu og Mos­fell­ingi. At­huga­semda­frest­ur var frá 24.10.2024 til og með 08.12.2024. Engin umsögn barst.

          Af­greiðsla 622. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar stað­fest á 863. fundi bæj­ar­stjórn­ar með 11 at­kvæð­um.

          • 13 month-11 2024

            Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #622

            Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 616. fundi sín­um að kynna deili­skipu­lags­breyt­ingu við Skála­hlíð í Hlíða­hverfi, í sam­ræmi við 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an fel­ur í sér að koma fyr­ir grennd­ar­stöð í sam­ræmi við áætlun um fjölg­un grennd­ar­stöðva og inn­leið­ingu hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Til­lag­an var aug­lýst og gögn gerð að­gengi­leg á vef Mos­fells­bæj­ar, mos.is, Skipu­lags­gátt­inni, Lög­birt­inga­blað­inu og Mos­fell­ingi. At­huga­semda­frest­ur var frá 24.10.2024 til og með 08.12.2024. Engin umsögn barst.

            Um­sagn­ir lagð­ar fram til kynn­ing­ar. Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að fela skipu­lags­full­trúa áfram­hald­andi vinnu máls.

            • 25 month-8 2024

              Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #857

              Lögð er fram til kynn­ing­ar og af­greiðslu til­laga að deili­skipu­lags­breyt­ingu við Skála­hlíð í Hlíða­hverfi. Til­lag­an fel­ur í sér að koma fyr­ir grennd­ar­stöð í sam­ræmi við áætlun um fjölg­un grennd­ar­stöðva og inn­leið­ingu hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Áætl­un­in var tekin fyr­ir og kynnt á 608. fundi nefnd­ar­inn­ar.

              Af­greiðsla 616. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar sam­þykkt á 857. fundi bæj­ar­stjórn­ar með 11 at­kvæð­um.

              • 20 month-8 2024

                Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #616

                Lögð er fram til kynn­ing­ar og af­greiðslu til­laga að deili­skipu­lags­breyt­ingu við Skála­hlíð í Hlíða­hverfi. Til­lag­an fel­ur í sér að koma fyr­ir grennd­ar­stöð í sam­ræmi við áætlun um fjölg­un grennd­ar­stöðva og inn­leið­ingu hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Áætl­un­in var tekin fyr­ir og kynnt á 608. fundi nefnd­ar­inn­ar.

                Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að til­laga að breyttu deili­skipu­lagi verði kynnt og aug­lýst í sam­ræmi við 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an skal kynnt með áber­andi hætti í Mos­fell­ingi, á vef sveit­ar­fé­lags­ins www.mos.is og gögn að­gengi­leg í Skipu­lags­gátt­inni til um­sagn­ar og at­huga­semda.