Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

18. mars 2024 kl. 09:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
  • Þór Sigurþórsson

Fundargerð ritaði

Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Sölkugata 11 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2,202310754

    Benedikt Eyjólfsson Funafold 62 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu og auka íbúð á neðri hæð á lóðinni Sölkugata nr. 11 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 382,4 m², bílgeymsla 37,0 m², 1.392,8 m³.

    Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.

    • 2. Voga­tunga 73 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1,202401283

      Ottó Þorvaldsson Vogatungu 73 sækir um leyfi til að byggja úr timbri, áli og gleri garðskála við einbýlishús á lóðinni Vogatunga nr. 73 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 15,0 m², 35,25 m³.

      Vísað til um­sagn­ar skipu­lags­nefnd­ar og skipu­lags­full­trúa
      þar sem fyri­hug­uð stækk­un er ekki inn­an bygg­ing­ar­reits.

      Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00