Í túninu heima, bæjarhátíð Mosfellsbæjar, verður haldin í áttunda sinn dagana 24.-26. ágúst næstkomandi.
Eins og fram hefur komið í auglýsingum í bæjarblaðinu okkar Mosfelling þá verða ekki sölu- og markaðsbásar í Íþróttamiðstöðinni að Varmá að þessu sinni. Að þessu sinni munu Álafossbúðin, Kaffihúsið í Álafossbrekku og Ásgarður sjá um markaðstjöld á Álafossi.
Markaður:
Markaður með allt milli himins og jarðar verður í Álafosskvosinni laugardag og sunnudag. Áhugsömum um pláss eru veittar nánari upplýsingar gegnum tölvupóst: alafosskvos[hjá]gmail.com eða í síma 8978284 - Unnur.