Atburður

Frá 09.08.2012 16:00 til 29.09.2012 20:00

Fjórir Moskóvítar í Listasal Mosfellsbæ

09. ágúst - 28. september

Inga Elín, Ólöf Oddgeirsdóttir, Sigurður Þ. Þórólfsson og Steinunn Marteinsdóttir sýna.

 Í tilefni af 25 ára afmæli Mosfellsbæjar verður haldin afmælishátíð í Bókasafni Mosfellsbæjar.

Hljómsveitin Mojito hefur gleðina með hljómleikum kl 16.00. Listsýningin Fjórir Moskóvítar verður opnuð kl. u.þ.b. 16.50 að loknum stuttum hátíðarfundi bæjarstjórnar. Til að slá botninn í gleðina munu systurnar Dísella, Ingibjörg og Þórunn Lárusdætur taka lagið.

Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.

Afgreiðsla bókasafnsins mun vera lokuð þann daginn.

Fjórir Moskóvítar