FaMos

Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni, FaMos, var stofnað 1. október 2002 fyrir íbúa Mosfellsbæjar og nágrennis 60 ára og eldri. 

Markmið félagsins er að gæta hagsmuna eldri borgara hér í bæjarfélaginu og nágrenni.  Gefin eru út félagsskírteini sem gefa félögum kost á verulegum afslætti hjá mörgum verslunum og stofnunum.

Félagið hefur skrifstofu á 2. hæð í Hlégarði  þar sem stjórnarmenn eru til viðtals fyrsta og þriðja miðvikudag hvers mánaðar milli kl. 17.00 og 18.00 frá september til maí. 

Gönguhópur er starfræktur undir stjórn Eyvindar Péturssonar. 
Gengið er alla laugardaga kl. 11.
Lagt af stað frá Hlégarði og að göngu lokinni drekkur hópurinn saman kaffi.

Vatnsleikfimi fyrir félaga FaMos verður í Lágafellslaug og hefst Þriðjudaginn 8. janúar. 
Kennari er Hafdís Elín Helgadóttir íþróttakennari. 

Um er að ræða 11 vikna námskeið tvisvar í viku: þriðjudaga kl. 09.30 - 10.10 og föstudaga kl. 09.00 - 09.40
Þátttökugjald fyrir tímabilið eru kr. 2200 fyrir einu sinni í viku og kr. 4400 fyrir tvisvar í viku.

Vinsamlegast mætið snemma í fyrsta tíma svo ráðrúm gefist til að ganga frá greiðslu.

Boccia fyrir félagsmenn FaMos hefst í Íþróttahúsinu að Varmá miðvikudaginn 9. janúar kl. 10:15-12:00  og verður einu sinni í viku til aprílloka. 
Þátttökugjald er kr. 2.500  og greiðist í fyrsta tíma.

Nánskeið í Íslendingasögum  Bárðarsaga Snæfellsáss.  Námskeiðið hefst þriðjudaginn 15. janúar - 5. febrúar kl. 17:00- 19:00 í Brúarlandi.
Leiðbeinandi er Bjarki Bjarnason. Þegar sumrar verður farið í ferð um söguslóðir undir leiðsögn Bjarka.  Upplýsingar og skráning er hjá Grétari Snæ,
netfang gretar@heima.is og í símum 566 6536 eða 897 6536.

Opið hús eða menningarkvöld verða þriðja mánudag í hverjum mánuði í Hlégarði

Fyrsta menningarkvöld ársins 2013 var mánudaginn 21. janúar

 

 

FaMos sendir félögum sínum fréttabréf 2-3  á ári þar sem kynnt er dagskrá menningarkvölda vetrarins og það sem efst er á baugi hverju sinni.

 

Farið er í dagsferð á hverju vori og lengri ferð á sumarmánuðum.

__________________________________________________


STJÓRNIR OG NEFNDIR

Stjórn félagsins skipa frá síðasta aðalfundi:

 

Ragnheiður Stephensen formaður 566 6102 / 897 7639 
Karl E Loftsson varaform  566 8128 / 863 9707 
Guðrún Esther Árnadóttir  ritari 566 6798 / 845 9713 
Sigrún Sigurðardóttir gjaldkeri 566 6536 / 894 0536
Einar Hólm Ólafsson meðstjórnandi 566 6558 / 896 9558 
 Sara Elíasdóttir varamaður  566 6391 / 694 1926
Magnús Sigsteinsson varamaður 566 6328 / 863 3184 

Hægt er fá nánari upplýsingar um félagsstarfið og skrá sig í FaMos hjá stjórnarmönnum  símleiðis eða rafrænt. 


Starfandi nefndir og hópar í vetur eru:

 

Menningar- og skemmtinefnd:
Birgir D. Sveinsson
Grétar Snær Hjartarson
María Guðmundsdóttir
Guðrún Esther Árnadóttir
Einar Halldórsson
Einar Hólm Ólafsson  

Kaffinefnd:
Sigrún Stella Guðmundsdóttir
Elísabet Kristjánsdóttir
Nicoline Schjetne
Anna María Einarsdóttir
Helga H. Friðriksdóttir
Svava Ingimarsdóttir

Íþróttanefnd:
Auður Sveinsdóttir
Helga Friðriksdóttir
Ólafur Gunnarsson
Sigríður Kjartansdóttir
Sigríður Óskarsdótttir
Ferðanefnd:
Gréta Aðalsteinsdóttir
Jón Þórður Jónsson
Karl Loftson
Gönguhópur:
Eyvindur Pétursson