Mannauðsstjóri Mosfellsbæjar fylgir eftir og hefur umsjón með
mannauðsstefnu bæjarins í víðu samhengi og veitir alhliða ráðgjöf við
svið, stofnanir og starfsmenn bæjarins eftir atvikum.
Nafn: Sigríður Indriðadóttir
Starfsheiti: Mannauðsstjóri
Netfang: sigriduri[hja]mos.is
Sími: 525-6700
Deild: Stjórnsýslusvið
Mannauðsstefna Mosfellsbæjar
Mosfellsbær – framsækið samfélag sem ræktar vilja og virðingu
Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mannauðsstefnan byggir á fjórum gildum Mosfellsbæjar virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju sem eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara vel saman, vinnustaðnum til hagsbóta og starfsmönnum til aukinna lífsgæða. Mannauðsstefnan endurspeglar þannig metnað sveitarfélagsins til að vera vinnuveitandi í fremstu röð og mikilvægt er að stjórnendur, starfsmenn og kjörnir fulltrúar taki sér á herðar þá gagnkvæmu ábyrgð að framfylgja stefnunni. Mannauðsstefnan skal tekin til endurskoðunar á tveggja ára fresti.
Markmið mannauðsstefnunnar eru að:
- Mosfellsbær sé eftirsóknarverður og aðlaðandi vinnustaður
- hjá sveitarfélaginu starfi áhugasamt og hæft fólk sem býr við góð starfsskilyrði
- rækta þekkingu og færni starfsmanna og stuðla að því að þeir miðli þekkingu sín á milli
- starfsumhverfið einkennist af jákvæðni, virðingu og samheldni
- jafnvægi ríki milli vinnu og einkalífs
- starfsmenn Mosfellsbæjar veiti íbúum bæjarins góða þjónustu
- gildi Mosfellsbæjar séu ávallt höfð að leiðarljósi
1. Ráðningar og kjör
Starfsmenn Mosfellsbæjar eru ráðnir á grundvelli reynslu, hæfni, menntunar og hæfileika til að takast á við starfið. Laus störf skulu auglýst á opinberum vettvangi og til að tryggja sanngirni og fagmennsku skulu allar ráðningar hjá Mosfellsbæ byggjast á samræmdu ráðningarferli. Kjör starfsmanna taka mið af kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.
2. Hlutverk og ábyrgð starfsmanna
Það er mikilvægt fyrir Mosfellsbæ sem vinnuveitanda að starfsmenn séu stoltir af starfi sínu og vinnustað. Til að geta veitt íbúum Mosfellsbæjar framúrskarandi þjónustu er mikilvægt að starfsmenn sýni jákvætt viðmót og þjónustulund í starfi.
Gengið er út frá því að starfsmenn séu hæfir til að gegna starfi sínu, séu virkir, sjálfstæðir og áhugasamir og hafi innsýn í starfsemi vinnustaðarins. Þeir skulu ennfremur sýna viðleitni til að efla hæfni í starfi og nýta möguleika sína til að stuðla að framþróun sveitarfélagsins.
Starfsmenn skulu sýna hver öðrum virðingu og umhyggju, vanda samskipti sín á milli og stuðla að lausn ágreiningsmála.
3. Siðareglur
Starfsmönnum Mosfellsbæjar ber að fara eftir þeim lögum, reglugerðum og reglum er varða starfssvið þeirra. Þeir skulu sýna trúnað í samskiptum sínum við íbúa, samstarfsfólk og aðra aðila. Trúnaður helst þó starfsmaður láti af störfum. Starfsmenn Mosfellsbæjar starfa í þágu bæjarbúa og skulu ávallt setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum.
4. Öflugir stjórnendur
Gerðar eru kröfur um að stjórnendur hjá Mosfellsbæ búi yfir leiðtogahæfni og sýni fagmennsku í starfi sínu. Mikið er lagt upp úr fræðslu og þjálfun til stjórnenda með það fyrir augum að efla þá í starfi. Stjórnendur gegna lykilhlutverki í samskiptamálum og upplýsingamiðlun og veita starfsmönnum sínum leiðsögn, hvatningu og endurgjöf. Ennfremur skulu stjórnendur stuðla að jákvæðu viðhorfi og eflingu liðsheildar.
Stjórnendur skulu leitast við að dreifa valdi og ábyrgð með sjálfstæði og frumkvæði starfsmanna að leiðarljósi. Þeir skulu hvetja til þekkingarmiðlunar, skoðanaskipta, nýbreytni, þróunar og ábyrgðar, og þannig stuðla að því að starfsmenn taki þátt í ákvarðanatöku sem varðar starf þeirra og þróun vinnustaðarins.
5. Starfsmannasamtöl
Mosfellsbær leggur mikla áherslu á að góð tengsl ríki milli starfsmanns og stjórnanda. Allir starfsmenn sveitarfélagsins skulu fara í starfsmannasamtal hjá yfirmanni sínum, a.m.k. einu sinni á ári. Í starfsmannasamtalinu skulu starfsmaður og stjórnandi ræða um gagnkvæmar væntingar og kröfur, styrkleika og veikleika, starfsánægju og líðan. Einnig skal farið yfir markmiðasetningu, endurgjöf á frammistöðu og starfsþróun.
6. Lýðræði, jafnrétti og fjölmenning
Vinnustaðir Mosfellsbæjar skulu endurspegla margbreytileika samfélagsins. Mosfellsbær er aðili að Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum og viðurkennir þannig rétt kvenna og karla til jafnrar stöðu hvað varðar alla þætti starfsmannamála.
Unnið skal í anda fjölmenningar og jafnréttis, þar sem reynsla og þekking allra starfsmanna fær notið sín óháð stöðu á vinnustað. Allir starfsmenn Mosfellsbæjar njóta sambærilegra réttinda óháð kynferði, þjóðerni, trúarbrögðum, fötlun, kynhneigð, aldri, heilsufari eða öðrum þáttum eins og stjórnmálaskoðunum eða félagslegri stöðu.
7. Einelti, áreitni og vanlíðan
Einelti og/eða áreitni af öllum toga líðst ekki á vinnustöðum Mosfellsbæjar. Mosfellsbær hefur mótaða stefnu um forvarnir og aðgerðir gegn einelti, áreitni og vanlíðan á vinnustöðum bæjarins. Forstöðumenn skulu sjá til þess að þeirri stefnu sé framfylgt. Þolendur og gerendur eineltis og áreitni skulu njóta ráðgjafar og stuðnings við úrvinnslu afleiðinga þess.
8. Fjölskylduvænn vinnustaður
Mosfellsbær er fjölskylduvænn vinnustaður sem viðurkennir mikilvægi þess að starfsmenn geti með sem bestum hætti samræmt vinnu sína og einkalíf. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að starfsmenn geti sinnt daglegum störfum sínum á dagvinnutíma og virðing er borin fyrir frítíma starfsmanns.
9. Þróun og þekking
Mosfellsbær er lærdómssamfélag þar sem miðlun þekkingar innan og milli stofnana er í forgrunni. Stjórnendur skulu hvetja til þekkingarmiðlunar, m.a. með samnýtingu námskeiða og fræðsludaga. Lögð er áhersla á að nýta þekkingu starfsmanna þannig að annað starfsfólk eða stofnanir njóti góðs af. Í tengslum við árlega starfsáætlun stofnunar skal forstöðumaður útfæra starfsþróunaráætlun sem miðar að því að starfsmenn auki við þekkingu, efli starfshæfni og nýti hæfileika sína til að takast á við dagleg verkefni.
Með framsækni að leiðarljósi er starfsmönnum gert kleift að sýna frumkvæði í starfi og stuðla að hvers kyns framþróun og nýbreytni. Þannig er litið á framþróun og breytingar sem eðlilegan þátt í starfsemi stofnana Mosfellsbæjar.
10. Nýliðafræðsla
Næsti yfirmaður nýráðins starfsmanns ber ábyrgð á að framfylgja samræmdri móttökuáætlun fyrir nýliða. Nýir starfsmenn skulu fá fræðslu við hæfi og viðeigandi aðstoð til að komast vel inn í starfið.
Allir starfsmenn skulu fá afhenta starfsmannahandbók Mosfellsbæjar ásamt starfsmannahandbók viðkomandi stofnunar um leið og þeir hefja störf.
11. Upplýsingamiðlun
Upplýsingaflæði innan og milli stofnana skal vera öflugt og skilvirkt. Tryggt skal að starfsmenn séu vel upplýstir um skipulag og markmið vinnustaðarins. Hver stofnun skal stefna að því að halda starfsmannafundi að minnsta kosti einu sinni í mánuði.
Starfsmenn skulu sýna frumkvæði til að afla nauðsynlegra upplýsinga sem starfið krefst og leitast við að miðla upplýsingum til hvers annars. Stefnt er að því að starfsmenn hafi aðgengi að upplýsingum í gegnum innri upplýsingavef.
12. Starfsumhverfi og heilsa
Starfsmenn og stjórnendur bera sameiginlega ábyrgð á að skapa jákvæða og góða vinnustaðamenningu þar sem gagnkvæm virðing, umhyggja og góð líðan er í fyrirrúmi.
Á tveggja ára fresti skal gerð viðhorfskönnun meðal starfsmanna. Markmiðið er að greina styrkleika og áskoranir hvað varðar starfsumhverfi og ýmsa árangursþætti mannauðsstjórnunar. Niðurstöður skulu nýttar til að gera áætlanir um úrbætur.
Stefnt er að því að taka í notkun ábendingakerfi fyrir starfsmenn Mosfellsbæjar, þar sem hægt er að koma hugmyndum og ábendingum á framfæri um þætti í starfi og starfsumhverfi sem betur mættu fara.
Stofnanir Mosfellsbæjar bjóða upp á hvetjandi, öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi. Starfsfólk Mosfellsbæjar er hvatt til að stunda reglulega hreyfingu og huga vel að andlegri og líkamlegri velferð sinni.
13. Tóbak, áfengi og vímuefni
Notkun tóbaks er óheimil á vinnustað og geta starfsmenn fengið ráðgjöf um úrræði til að hætta tóbaksnotkun.
Notkun áfengis og vímuefna við störf er með öllu óheimil. Starfsmenn sem eiga við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða geta fengið ráðgjöf um úrræði til að takast á við vandann.
14. Starfslok
Mosfellsbær skapar starfsfólki sínu möguleika á samfelldum starfsferli þar sem leitast er við að taka tillit til aldurs, breytinga á persónulegum högum, skertrar starfsgetu, aukinnar menntunar eða annars sem getur kallað fram þörf á að flytjast til í starfi. Starfsmönnum er heimilt að vinna til loka þess árs er þeir ná 70 ára aldri.
Ef starfsmanni er sagt upp störfum á hann rétt á skriflegum rökstuðningi fyrir ástæðum uppsagnar.
Stefnt er að því að tekin séu starfslokaviðtöl þegar starfsmenn láta af störfum og skulu ábendingar úr því samtali notaðar til að bæta atriði sem betur mættu fara.