Vinnustaðurinn

Hjá Mosfellsbæ starfa að jafnaði um 540 starfsmenn. Mosfellsbær
byggir hina framúrskarandi og persónulegu þjónustu sína á áhugasömu og
hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni
í jákvæðu starfsumhverfi.
Mosfellsbær setur sér þau markmið að vera eftirsóknarverður og
aðlaðandi vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara vel
saman.