Menningarsvið

Hlutverk sviðsins er að fara með framkvæmd menningarmála hjá Mosfellsbæ. Það hefur yfirumsjón með starfsemi Bókasafns Mosfellsbæjar, Listasals Mosfellsbæjar, Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá og Íþróttamiðstöðvarinnar Lágafells.

Menningarsvið sér um samninga, styrki og samskipti við lista- og menningarlífið og er bæjaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra.

Menningarsvið hefur einnig það hlutverk að skapa börnum, unglingum og ungmennum skilyrði til virkrar þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi, stuðla að heilbrigði almennings með því að veita einstaklingum á öllum aldri gott aðgengi að fjölbreyttri íþróttaiðkun, vera í fararbroddi við að efla og þróa fagumhverfi frítímaþjónustunnar og veita íþrótta- og æskulýðsfélögum þjónustu og stuðning.

Framkvæmdastjóri:
Björn Þráinn Þórðarson.
Símatími: miðvikudaga og föstudaga frá kl. 10:00-12:00 í síma 525 6700
Netfang: bjorn[hja]mos.is
Staðsetning: 3. hæð í Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellssbæ

Helstu málaflokkar sviðsins eru fræðslumál, íþrótta- og tómstundamál og menningarmál. Að auki annast starfsmenn sviðsins undirbúning hátíðahalda á vegum bæjarins og hafa umsjón með vinabæjarmálum.

Hlutverk framkvæmdastjóra er að samræma alla starfsemi er undir sviðið heyrir og hafa yfirumsjón með henni. Hann er starfsmaður fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar, menningarmálanefndar og þróunar- og ferðamálanefndar. 

Stofnanir/málaflokkar
Bókasafn
Menningarmál
Tómstundir/félagsmiðstöð
Vinabæir

Nefndir
Menningarmálanefnd
Íþrótta og tómstundarnefnd
Þróunar- og ferðamálanefnd