Myndlist
Myndlistarskóli Mosfellsbæjar
Aðsetur: Álafossvegur 23, 270 Mosfellsbær
Símar: 5668710
Skólastjóri: Ásdís Sigurþórsdóttir
Netfang: myndmos[hja]heimsnet.is
Veffang: www.internet.is/myndmos/MyndMos.html
Myndlistarskólinn er til húsa í gamla verksmiðjuhúsinu í Álafosskvos.
Myndlistarskóli Mosfellsbæjar er með myndlistarnámskeið fyrir börn,
unglinga og fullorðna og skiptist skólaárið í tvö sjálfstæð misseri.
Starfstími skólans fylgir skólastarfi grunnskólanna. Haustönn hefst að
jafnaði um miðjan september og lýkur um miðjan janúar. Vorönn hefst upp
úr miðjum janúar og lýkur í byrjun maí.
Kennd eru undirstöðuatriði teiknunar, mótunar og málunar og þess
gætt að verkefnin séu fjölbreytt, hvað varðar efni og innihald og
verkefnin hæfi aldri og þroska nemendanna.
Skólinn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga að loknu
skólaári grunnskólanna og ávallt er leitast við skólann starfi fagfólk
með þekkingu og reynslu á sviði myndlistar og barnastarfs.
Myndlistarskólinn vinnur árlega að sameiginlegri dagskrá og sýningum
þeirra aðila er starfa undir merkjum Listaskóla Mosfellsbæjar.