Félagsmiðstöðin Bólið
Tómstundafulltrúi/Forstöðumaður: Edda R. Davíðsdóttir
Sími: 566-6058
Staðsetning: Gamla handmenntarhúsið við Skólabraut 2
Netfang: edda[hja]mos.is / bolid[hja]mos.is
Veffang: http://www.bolid.bloggar.is/
Tómstundafulltrúi er jafnframt forstöðumaður félagsmiðstöðvar og vinnuskóla.
Allir sem að eru í 7. - 10. bekk Varmárskóla og Lágafellsskóla eru velkomnir í Félagsmiðstöðina.
Félagsmiðstöðin Ból er opin sem hér segir:
Fyrir 8. - 10. bekk
Mánudaga og miðvikudaga frá 9:30-17:00 og 19:00 - 22:00
Þriðjudaga og fimmtudaga frá 9:30-17:00
Föstudaga frá 10:00-16:00 og 19:00-22:00
Fyrir 7. bekk
Alla daga frá 10:00-14:00
Alla fimmtudaga í mánuði frá 18:00-20:00.
Það er alltaf eitthvað að gerast í Bólinu, t.d. opið hús, þar er hægt að spila billiard, borðtennis og fl. Horfa á sjónvarpið, syngja í Karaokee, spjalla og ýmislegt annað. Fastir liðir eru árshátíð Bólsins, Spurningakeppni, söngvakeppni, street ball mót, fræðslukvöld, stjörnuleikurinn, ferðir og ýmislegt annað. Allir nemendur fá senda heim dagskrá bólsins tvo mánuði í senn. Þannig eiga allir að vita hvað er að gerast hverju sinni. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá okkur í Bólinu.
Starfsmenn Bólsins eru: Edda R. Davíðsdóttir tómstundafulltrúi, Gunnar Helgi Guðjónsson, Eyþór Árnason, Ólafía Sif Sverrisdóttir, Anna Lilja Björnsdóttir og Brynjólfur Löve. Hægt er að nálgast gjaldskrá Bólsins með því að fylgja hlekk hér að neðan:
Gjaldskrá Bólsins
Nefndir:
Íþrótta og tómstundanefnd fer með málefni félagsmiðstöðvar í umboði bæjarstjórnar.