Stefnur, gildi, framtíðarsýn

Mosfellsbær er á margan hátt sérstakt bæjarfélag. Á tiltölulega skömmum tíma hefur bærinn breyst úr friðsælli sveit í kraftmikið, nútímabæjarfélag með öllum þeim samfélagshræringum sem því fylgja. Fólk er meðvitaðra um sitt nánasta samfélag en áður og gerir jafnframt meiri kröfur.

Þegar Haraldur Sverrisson tók við sem bæjarstjóri haustið 2007 var eitt hans fyrsta verkefni að leggja til við bæjarráð að hafin yrði vinna við stefnumótun hjá Mosfellsbæ með þaðað markmiði að gera gott bæjarfélag enn betra enda sé það frumskylda bæjaryfirvalda hverju sinni að spyrja spurninga um það hvort unnið sé í samræmi við stefnu sem stuðlar að bættum hag og velferð bæjarbúa.

Vinnan hófst formlega í byrjun október 2007 og tók því um fimm mánuði. Ljóst er að það er stuttur tími miðað við umfang verkefnisins. 

Greiningarfundur var haldinn með íbúum og starfsfólki Mosfellsbæjar og í framhaldi hans fór fram stefnumótunarvinna. Niðurstöður hennar leiddu meðal annars til þess að gildi Mosfellsbæjar voru ákveðin, stefna Mosfellsbæjar og framtíðarsýn, sem sjá má hér til hliðar.Hér að neðan má hins vegar nálsgast stefnur Mosfellsbæjar í hinum ýmsu málaflokkum.

Jafnréttisstefna Mosfellsbæjar 2007-2010
Stefna í þróunar- og ferðamálum
Stefna um Sjálfbært Samfélag - Staðardagskrá 21