SAMÞYKKT
um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
I. KAFLI
Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.
1. gr.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er skipuð
sjö bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til
sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr.
45/1998.
2. gr.
Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum
eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að
fjórum árum liðnum.
3. gr.
Bæjarstjórn fer með stjórn Mosfellsbæjar
samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer
bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins að
svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.
4. gr.
Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.
5. gr.
Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni
eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn
ákveðið að bærinn taki að sér verkefni sem varðar íbúa hans sérstaklega
enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
6. gr.
Meðal verkefna bæjarstjórnar Mosfellsbæjar er:
1. Að
kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir,
ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr.
IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara
ársreikninga bæjarins og ráða löggiltan endurskoðanda eða
endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bænum.
2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
3. Að
stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja skv. VI. kafla
sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
4. Að ákveða stjórnkerfi bæjarins, ráða bæjarstjóra og forstöðumenn sviða.
II. KAFLI
Um fundarsköp bæjarstjórnar.
7. gr.
Bæjarstjórn heldur reglulega fundi
annan hvern miðvikudag sem ekki ber upp á almennum frídegi.
Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16:30. Bæjarstjóri
getur í samráði við forseta ákveðið að fella niður fundi í desember og
janúar. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo
mánuði að sumarlagi.
Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því
sem þörf krefur að mati forseta og bæjarstjóra og skylt er að halda
aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess,
enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
8. gr.
Sá kjörinn bæjarfulltrúi sem á að baki
lengstu setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að
afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún
tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.
Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.
9. gr.
Bæjarstjóri boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.
10. gr.
Íbúum bæjarins skal kunngert með
auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal
við að sem flestir íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.
Í
upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um
hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú
ákvörðun kynnt íbúum bæjarins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi
eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.
11. gr.
Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
1. Lögákveðnar
kosningar, svo sem kosningu forseta og varaforseta, kosningar nefnda,
ráða og stjórna á vegum bæjarins, svo og ráðningar bæjarstjóra og
forstöðumanna sviða.
2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
3. Önnur
mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða
forseti ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að
tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á
dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með
tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá
bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra
gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti
undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit
fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar.
12. gr.
Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarfulltrúum
fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að
þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir
bæjarstjórnarfund.
13. gr.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera
aðgengileg íbúum bæjarins þegar hún hefur verið samin, svo sem á
auglýsingatöflu bæjarins, í afgreiðslu bæjarins á venjulegum
afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður.
14. gr.
Bæjarstjóri skal senda bæjarfulltrúum
fundarboð aukafundar í bæjarstjórn þannig að það berist þeim ásamt
dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.
15. gr.
Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta
fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og
stýrir honum uns forseti hefur verið kjörinn.
Forseti bæjarstjórnar
skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings
meirihluta bæjarfulltrúa skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram
á ný.
Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði
meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa
að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri
bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja
tvo skuli kjósa.
Verður þá sá rétt kjörinn forseti sem fleiri atkvæði
fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður
hlutkesti kosningu.
Forseti stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta
bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3.
mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.
Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til félagsmálaráðuneytisins þegar að því loknu.
Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.
16. gr.
Bæjarstjórn getur kosið tvo skrifara og
tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi
og kosning forseta fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við
kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.
17. gr.
Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda
í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því
sem húsrúm leyfir.
Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem
fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar
um aðgang fatlaðs fólks.
Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál
verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis
málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt
er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt
getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er
fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum.
Tillaga um að mál
skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.
Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.
18. gr.
Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira
en helmingur bæjarfulltrúa er mættur á fundinn og getur bæjarstjórn
enga bindandi ályktun gert nema bæjarstjórnarfundur sé lögmætur.
19. gr.
Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum
hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og
afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt
sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók
bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og
nákvæmlega bókaðar.
Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en
skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að
allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er
bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og
góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr
fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á
bæjarstjórnarfundum.
20. gr.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í
bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða
bæjarstjórn ákveði annað.
Heimilt er að taka til meðferðar á
bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra
bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.
21. gr.
Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við
eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili
um eftirtalin málefni:
1. Fjárhagsáætlanir bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
2. Ársreikninga bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
4. Áætlanir fyrir bæinn sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr.
Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla
bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni
skyldustörf eða veikindi.
Sé bæjarfulltrúi forfallaður um
stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til
bæjarstjóra og boða varamann í sinn stað.
Varamenn taka sæti í
bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista
sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af
tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans
komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna
hefur forfallast.
Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með
málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé
kjörinn bæjarfulltrúi.
Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjarstjórnarfundi.
23. gr.
Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við
meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn
hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að
einhverju leyti þar af.
Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar
verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða
ákveða þóknun fyrir slík störf.
Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru
starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið
mál sem lagt er fyrir bæjarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórn
fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar
bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga
bæjarins.
Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að
vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð
máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir
afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo
vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að
máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.
24. gr.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi,
tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem
taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu
bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér
hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra,
framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta
athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri.
Hafi tveir eða fleiri
bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð
þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema
forseti leyfi annað.
25. gr.
Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til
forseta eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs,
annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða
lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.
Bæjarfulltrúi má
tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að
taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta
athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu
eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala a.m.k. þrisvar
við hverja umræðu máls.
Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi oddvita.
26. gr.
Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum
skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að
bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur
málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust.
Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef
óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða
slíta fundi ef nauðsyn krefur.
27. gr.
Telji forseti umræður dragast úr hófi
fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers
bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma
eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og
borið fram slíkar tillögur.
Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun
umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún
standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér
hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar
þessarar.
28. gr.
Bæjarfulltrúi getur borið fram
breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða
frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar
tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í
hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.
29. gr.
Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að
samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til
afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða
bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó
eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta
afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða
fyrir tiltekinn tíma.
30. gr.
Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer
að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa
sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti
mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum
atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að forseti telur
ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að
hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd
verði við það gerð.
Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með
nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k.
þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir
tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af
útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við
nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar
bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því
hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki
atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
31. gr.
Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
Kosningar
sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts
reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr.
5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins
fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við
forsetakjör.
32. gr.
Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan
fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í
gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur
er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru
fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er
afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð
hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda
nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða,
dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.
Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað.
Bæjarstjórn
getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert
skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær
fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í
gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir
bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok
fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af
fundarmönnum. Einnig skal forseti og a.m.k. einn fundarmanna setja
upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar
skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir
skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.
Bæjarfulltrúi
sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur
undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.
Bæjarstjórn
getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða
teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um
það nánari reglur.
III. KAFLI
Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.
33. gr.
Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.
Aðal-
og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða
stjórn á vegum bæjarins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að
sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni
bæjarstjórnar, svo sem störf forseta. Þó getur sá sem verið hefur
forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri
nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur
haft starfið á hendi.
34. gr.
Bæjarfulltrúa ber að gegna störfum sínum
í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins en í
störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu
sinni.
35. gr.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi,
tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar
er ákveðið í samþykkt þessari.
Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka
þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem
bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun,
ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir getur forseti
ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur
bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.
Bæjarfulltrúi á rétt
á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá
bæjarstjórnarfundar enda tilkynni hann það bæjarstjóra skriflega a.m.k.
þremur sólarhringum fyrir fund.
36. gr.
Bæjarfulltrúi á aðgang að bókum og
skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og
fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar
vegna starfa sinna.
37. gr.
Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn.
38. gr.
Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um
það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna
einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan
helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum.
39. gr.
Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta
gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur
bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin
ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá
sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
Nú
er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef
bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta og skal bæjarstjórn þá veita
honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
40. gr.
Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr
bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur
ferð á vegum bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á
greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
41. gr.
Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.
42. gr.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórn.
IV. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
43. gr.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð,
aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og
samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar
hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Bæjarstjórn kýs
jafnframt formann og varaformann bæjarráðs, svo og formenn og
varaformenn nefnda bæjarins, sbr. 57. gr. samþykktar þessarar, nema lög
mæli fyrir um annað.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru
ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða
stofnana er þeir starfa hjá.
44. gr.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að
afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn
þrjá fulltrúa í bæjarráð til eins árs og formann og varaformann
ráðsins. Aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama
framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri
röð sem þeir skipuðu listann. Hafi fulltrúi í bæjarráði verið kjörinn
til setu í bæjarstjórn í óbundinni kosningu skal þó fara fram kjör á
varamanni hans meðal aðal- og varamanna í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri
situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt
hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
Bæjarstjórn
getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en
ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í
bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa
fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og
tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna
sumarleyfa.
45. gr.
Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu
sinni í viku á fimmtudögum. Nýtt bæjarráð sem kosið er árlega ákveður
klukkan hvað fundir skuli haldnir. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri,
formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.
46. gr.
Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í
samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til
fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring
fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna
bæjarstjóra um forföll og boða varamann í sinn stað.
47. gr.
Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess
og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann
úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en
skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál
til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er
skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar
þess.
Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um
ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða
bæjarstjórnar, sbr. 32. gr.
48. gr.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með
framkvæmdastjórn bæjarins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn að því
leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.
Bæjarráð hefur umsjón með
stjórnsýslu bæjarins, veitum bæjarins, undirbúningi og eftirliti
framkvæmda, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að
fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum
tillögum forstöðumanna sviða og umsögnum hlutaðeigandi nefnda og
stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði
sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu
samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins
lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla
fyrir um.
Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu
einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil
fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða
stofnana hans enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við
bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og
ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt
fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.
Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.
49. gr.
Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.
50. gr.
Formaður nefndar boðar eða lætur boða
fundi í nefnd með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá með a.m.k. eins
sólarhrings fyrirvara.
51. gr.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema
lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um
stundarsakir skal hann sjá til þess að varamaður hans taki sæti í
nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bænum, fellur frá eða
forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema
bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.
Hafi tveir eða fleiri
flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá
sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé
eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr.
sveitarstjórnarlaga.
52. gr.
Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum
dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Enn
fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um
tiltekin mál.
53. gr.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði
II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum,
ráðum og stjórnum bæjarins eftir því sem við á.
54. gr.
Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og
stjórna á vegum bæjarins fer eftir því sem ákveðið er í lögum,
reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn getur falið
nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald
sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar.
55. gr.
Nefndir, ráð og stjórnir bæjarins skulu halda gerðabækur.
Í
samþykktum bæjarstjórnar fyrir einstakar nefndir skal kveðið á um að
nefndir skuli njóta aðstoðar starfsmanna bæjarins, svo sem vegna
ritunar fundargerða nema nefndir óski eftir að kjósa sér sérstakan
fundarritara innan nefndar.
Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr.
56. gr.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna
bæjarins skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo
fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda
ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar
bæjarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef
ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar ber að taka
þær sérstaklega fyrir. Í samþykktum bæjarstjórnar fyrir nefndir skal
nánar kveðið á um hvaða ályktanir og tillögur þarfnast ekki sérstakrar
staðfestingar bæjarstjórnar.
Hafi ályktun nefndar, ráðs eða
stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir eða hún
útheimtir verulega vinnu fyrir starfsmenn bæjarins sem ekki er gert ráð
fyrir í starfsáætlun ársins skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarráð
áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn.
57. gr.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:
A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:
1. Bæjarráð.
Þrír aðalmenn úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn skv. 38. gr.
sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og formann og varaformann ráðsins.
Aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista
og hinn kjörni bæjarráðsmaður verða sjálfkrafa varamenn hans í þeirri
röð sem þeir skipuðu listann. Hafi kjörinn bæjarráðsmaður verið kjörinn
bæjarfulltrúi í óbundinni kosningu skal varamaður hans kosinn úr hópi
aðal- og varamanna í bæjarstjórn.
B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:
1. Atvinnu-
og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn
kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með atvinnu- og
ferðamál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um
nefndina.
2. Búfjáreftirlitsnefnd. Einn aðalmaður til setu í
sameiginlegri búfjáreftirlitsnefnd Reykjavíkur, Seltjarnarness,
Mosfellsbæjar og Kjós og annan til vara skv. 10. gr. laga um búfjárhald
o.fl. nr. 103/2002.
3. Fjölskyldunefnd. Fimm aðalmenn og
jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann
nefndarinnar. Nefndin fer með félagsmál og húsnæðismál eftir því sem
kveðið er á um í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991,
lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og í samþykkt bæjarstjórnar um
nefndina. Nefndin fer með verkefni barnaverndarnefndar samkvæmt
barnaverndarlögum nr. 80/2002. Jafnframt fer nefndin með jafnréttismál
eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla nr. 96/2000.
4. Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og
jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann
nefndarinnar. Fræðslunefnd fer með fræðslumál eftir því sem nánar er
kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með
verkefni skólanefndar samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 66/1995 og
verkefni leikskólanefndar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 78/1994.
Nefndin fer enn fremur með málefni Tónlistarskóla Mosfellsbæjar
samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
5. Íþrótta-
og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn
kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með íþrótta- og
tómstundamál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt
bæjarstjórnar um nefndina.
6. Kjörstjórnir. Þrír aðalmenn og
jafnmargir til vara í kjörstjórn við forseta- og alþingiskosningar,
sbr. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, og á sama hátt
þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í kjörstjórnir fyrir hverja
kjördeild. Kjörstjórnir velja sér formenn og skipta með sér verkum,
sbr. áðurnefnd lög um kosningar til Alþingis. Þessar kjörstjórnir fara
jafnframt með verkefni kjörstjórna samkvæmt ákvæðum laga um kosningar
til sveitarstjórnar, sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna
nr. 5/1998.
7. Menningarmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til
vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar.
Menningarmálanefnd fer með menningarmál eftir því sem nánar er kveðið á
um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með málefni
Bókasafns Mosfellsbæjar, sbr. lög um almenningsbókasöfn nr. 36/1997.
Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra
minja samkvæmt þjóðminjalögum nr. 107/2001. Nefndin fer með
vinabæjarsamskipti, málefni félagsheimilisins Hlégarðs, hefur umsjón
með listaverkaeign bæjarins og fer með málefni Lista- og menningarsjóðs
bæjarins.
8. Skipulags- og byggingarnefnd. Fimm aðalmenn og
jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann
nefndarinnar. Nefndin fer með skipulags- og byggingarmál samkvæmt
ákvæðum skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og önnur verkefni eftir
því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina.
Nefndin fer með verkefni umferðarnefndar samkvæmt umferðarlögum nr.
50/1987.
9. Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga. Bæjarstjórn kýs tvo
skoðunarmenn og jafnmarga til vara samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr.
45/1998.
10. Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með
umhverfismál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt
bæjarstjórnar um nefndina. Hún fer með verkefni náttúruverndarnefndar
samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 og verkefni
gróðurverndarnefndar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965. Nefndin
hefur eftirlit með fjallskila- og afréttarmálum.
C. Á fyrsta eða
öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kýs bæjarstjórn
fulltrúa bæjarins í eftirtaldar samstarfsnefndir:
1. Almannavarnanefnd.
Tveir aðalmenn og jafnmargir til varaí sameiginlega almannavarnarnefnd
höfuðborgarsvæðisins, þ.e. Hafnafjarðar, Bessastaðahrepps, Garðabæjar,
Kópavogs, Seltjarnarness, Reykjavíkur, Mosfellsbæjar og Kjósar samkvæmt
samkomulagi sveitarfélaganna þar um og staðfestingu
dómsmálaráðuneytisins frá 14. nóvember 2003, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga
um almannavarnir nr. 94/1962, með síðari breytingum.
2. Heilbrigðisnefnd
Kjósarsvæðis. Samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir
nr. 7/1998 og samkomulagi við aðildarsveitarfélög kýs bæjarstjórn tvo
aðalmenn og tvo til vara í heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis og er
kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
3. Þjónustuhóp
aldraðra. Einn aðalmann og annan til vara skv. 7. gr. laga um málefni
aldraðra nr. 125/1999 og samkomulagi við sveitarfélög sem aðild eiga að
sama heilsugæsluumdæmi.
4. Stjórn heilsugæslustöðvar
Mosfellsumdæmis. Tveir aðalmenn og tveir til vara skv. 21. gr. laga um
heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 og samkomulagi Mosfellsbæjar,
Kjósarhrepps og Þingvallahrepps. Kjörtímabil stjórnar er hið sama og
bæjarstjórnar.
5. Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og
Bláfjallafólkvangs. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 3. gr.
samþykktar fyrir stjórn skíðasvæðanna frá 30. september 2003.
6. Fulltrúaráð Sorpu bs. Tveir aðalmenn og tveir til vara samkvæmt samningi aðildarsveitarfélaga frá 15. febrúar 1988.
7. Starfskjaranefnd.
Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. samkomulag um
starfskjaranefndir samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Mosfellsbæjar og Launanefndar sveitarfélaga frá 6. maí 1997.
8. Fulltrúaráð
Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til
vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr.
68/1994.
9. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjórir
aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 4. gr. laga Sambands íslenskra
sveitarfélaga frá 28. ágúst 1998 um sveitarfélög með íbúatöluna
5.001–10.000.
10. Launamálaráðstefna Launanefndar sveitarfélaga.
Allt að þrír fulltrúar og þrír til vara skv. 11. gr. samþykktar
nefndarinnar frá 31. mars 2000 um sveitarfélög með 201–500 stöðugildi.
11. Stjórn Strætó bs. Einn aðalmaður og einn varamaður í stjórn Strætó bs., sbr. 5. gr. í stofnsamningi Strætó bs.
12. Samstarfsnefnd um málefni lögreglunnar. Einn aðalmaður í samstarfsnefndina skv. 12. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
13. Bæjarstjórn kýs í ýmsar aðrar nefndir samkvæmt sérstökum samþykktum sínum og eða samstarfssamningum við aðra aðila.
58. gr.
Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að
vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur
niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar er
lokið. Bæjarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær
sem er.
V. KAFLI
Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarins.
59. gr.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra og
gerir við hann skriflegan ráðningarsamning þar sem meðal annars skal
kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal
staðfestur af bæjarstjórn.
60. gr.
Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og
bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum
bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en
eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráð og
bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með
sömu réttindum.
Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana
bæjarstjórnar og málefna bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn
hefur ekki ákveðið annað.
Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs.
Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins,
lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki
bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki
bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru.
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins.
Bæjarritari gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn feli það öðrum.
61. gr.
Bæjarstjórn ræður forstöðumenn sviða og
veitir þeim lausn frá störfum. Bæjarstjórn setur á grundvelli þessarar
greinar nánari vinnureglur um ráðningar, lausn frá störfum, launuð og
launalaus leyfi o.fl.
62. gr.
Bæjarráð ræður aðra forstöðumenn og
veitir þeim lausn frá störfum. Bæjarstjórn setur á grundvelli þessarar
greinar nánari vinnureglur um ráðningar, lausn frá störfum, launuð og
launalaus leyfi, svo og vinnureglur varðandi meðferð annarra
ráðningarmála á vegum forstöðumanna stofnana, umsjón launadeildar,
meðferð gagna, ákvæði um gildistöku ráðningar o.fl.
63. gr.
Um starfskjör, réttindi og skyldur
starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni
og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.
VI. KAFLI
Um fjármálastjórn bæjarins.
64. gr.
Fyrir lok desembermánaðar ár hvert
skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og
stofnana bæjarins fyrir yfirstandandi ár að undangengnum tveimur
umræðum í bæjarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir
lok frestsins skal sækja skriflega um frest til félagsmálaráðuneytisins
og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.
Form fjárhagsáætlunar skal
vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram
rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs,
auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og
tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun
fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal
við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu
bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.
Bæjarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarins fari ekki fram úr heildartekjum hans.
65. gr.
Fjárhagsáætlun skv. 64. gr. skal vera
meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarins
á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr
bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu
lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn.
Samþykki
bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún
jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda,
svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki
slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.
66. gr.
Hafi forsendur fyrir gerð
fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða
fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina
umræðu á bæjarstjórnarfundi enda hafi breytingartillögurnar verið
sendar öllum fulltrúum í bæjarstjórn með dagskrá viðkomandi
bæjarstjórnarfundar.
67. gr.
Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal
bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur,
framkvæmdir og fjármál bæjarins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera
rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarins. Skal hún unnin og afgreidd
af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar
fjárhagsáætlunar.
68. gr.
Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar
skal senda félagsmálaráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 64. gr. og þriggja
ára áætlun skv. 67. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta
skv. 66. gr.
69. gr.
Ársreikningur bæjarins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.
Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.
Bæjarstjórn
skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana
bæjarins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert.
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn.
Eintak af
ársreikningnum skal senda félagsmálaráðuneytinu og Hagstofu Íslands
fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og
skoðunarmanna.
VII. KAFLI
Gildistökuákvæði.
70. gr.
Til þess að gera breytingu á samþykkt
þessari þarf umræður á tveimur fundum í bæjarstjórn, samþykki
meirihluta atkvæða og staðfestingu félagsmálaráðuneytisins.
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar
hefur sett skv. 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998,
staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr
gildi samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr.
428/2000.
Félagsmálaráðuneytinu, 6. febrúar 2004.
F. h. r.