Bæjarstjórn
Framkvæmdastjórn sveitarfélagsins kallast bæjarstjórn og er skipuð sjö fulltrúum sem kjörnir eru í sveitarstjórnarkosningum til fjögurra ára í senn. Bæjarstjórn fer með æðsta ákvörðunarvald varðandi framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast og nýtingu tekjustofna þess. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins og hefur æðsta vald varðandi starfsmannaráðningar sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja í samræmi við Sveitarstjórnarlög nr.45/1998
Fundir bæjarstjórnar
Bæjarstjórn heldur að jafnaði fundi, annan hvern miðvikudag (þó ekki á sumrin), í fundarsal bæjarstjórnar, Helgafelli, á 2. hæð í Kjarna Þverholti 2. Fundirnir hefjast kl. 16:30 og eru opnir almenningi.
Dagskrá funda er auglýst í Þjónustuveri á jarðhæð í Kjarna og hér á vef Mosfellsbæjar.
Fundargerðir bæjarstjórnar
Kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn
Fulltrúar D lista og V lista eru saman með meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar kjörtímabilið 2010-2014.
Aðal- og varafulltrúar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar kjörtímabilið 2010 - 2014 voru kjörnir:
Bæjarritari, Stefán Ómar Jónsson, annast ritun fundargerða.
Samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar