Héraðsskjalavörður: Birna Mjöll Sigurðardóttir
Netfang: skjalasafn[hja]mos.is
Afgreiðslutímar: Eftir samkomulagi
Sími: 525 6700
Myndsendir: 525 6729
Staðsetning: jarðhæð í Kjarna, Þverholti 2 - 270 Mosfellsbæ
Hlutverk:
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar annast móttöku og skráningu á skilaskildum skjölum frá stofnunum og fyrirtækjum í Mosfellsbæ og nágrenni.
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar var formlega stofnað 24. október 2001.
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar starfar samkvæmt lögum nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands og reglugerð nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn og lýtur faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands.
Héraðsskjalasafnið mun annast söfnun, innheimtu og varðveislu skjala frá afhendingarskyldum aðilum, þ.e. embættum, stofnunum og félögum í Mosfellsbæ, skrásetja þau og gera aðgengileg notendum og á allan hátt leitast við að varðveita og efla þekkingu á sögu umdæmisins.
Jafnframt mun safnið safna skjölum einstaklinga og félagasamtaka, auk ljósmynda, hljóð- og myndbanda, sem varða sögu héraðsins eða íbúa þess á einhvern hátt.