Upplýsingafulltrúi Mosfellsbæjar er Sigríður Dögg Auðunsdóttir s. 894 9050 og svarar hún öllum fyrirspurnum fjölmiðla sem varða Mosfellsbæ eða vísar þeim áfram til þar til bærra aðila.
Helstu upplýsingar
Mosfellsbær
er um 8500 manna, ört vaxandi, framsækið og nútímalegt bæjarfélag í
útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Hér hefur verið mesta íbúafjölgun allra
sveitarfélaga á Íslandi á síðasta áratug að undanskildu Álftanesi enda
hefur Mosfellingum fjölgað um 57% á síðustu tíu árum. Mosfellsbær er nú
orðið sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins.
Mosfellsbær er landmikið sveitafélag, tæpir 20.000 ha, með fjölbreytta
landnotkun sem skapar mikil tækifæri í uppbyggingu. Lögð er áhersla á
fjölbreytni og valfrelsi í skipulagi og þjónustu og um leið að tengja
saman hið byggða og hið náttúrulega umhverfi.
Náin snerting við fagra náttúru, aðlaðandi menningar- og félagslíf,
fjölbreyttir möguleikar til útivistar og fjölskylduvænt umhverfi eru á
meðal ástæðna þess að svo margir velja að búa þar, fjarri skarkala
borgarlífsins en samt í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg
Reykjavíkur, í einskonar sveitasælu með borgarbrag.
Hér má nálgast glærukynningu þar sem finna má nánari upplýsingar um Mosfellsbæ.(.pdf - 884 KB)