Lesa frétt

6.7.2010

Hjólreiðatúr og grill á morgun, miðvikudag

Hjólatúr fjölskyldunnarÁ miðvikudögum og föstudögum í sumar verður boðið upp á skemmtilega og fjölbreytta viðburði í Mosfellsbæ undir yfirskriftinni Sumartorg - Brosandi bær. Á föstudögum eru viðburðir haldnir á Miðbæjartorgi en á miðvikudögum víðs vegar um bæinn.

Miðvikudaginn 7. júlí kl. 16:30 verður farið í hjólreiðatúr fjölskyldunnar undir leiðsögn Höllu Karenar Kristjánsdóttur. Lagt verður af stað frá Lágafellslaug og hjólað verður upp í Reykjalundarskóg. Farið verður í leiki og fjör á túninu og einnig verður grill á staðnum sem allir eru hvattir til að nýta sér.

Fjölmennum og njótum þess sem er í boði í bænum okkar!

Munið að koma með á grillið!