Stjórnsýsla

Stjórnsýsla og þjónusta Mosfellsbæjar er skilvirk, ábyrg, vönduð og í fremstu röð á Íslandi.
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar er til húsa í Kjarna, Þverholti 2. Í þjónustuveri á fyrstu hæð í Kjarna er leitast við að bjóða framúrskarandi þjónustu og er markmiðið að þjónustufulltrúar geti svarað milliliðalaust öllum spurningum og fyrirspurnum sem til þeirra er beint.
Þjónustuver Mosfellsbæjar er opið mánudaga til föstudaga kl. 8.00-16.00
Þjónusta Mosfellsbæjar við íbúa og viðskiptavini er í senn margþætt og víðfem og á köflum flókin. Að baki allri þjónustu Mosfellsbæjar er ákveðin stjórnsýsla, en hlutverk hennar er bæði að fylgja eftir og skilgreina þær leikreglur sem gilda eiga um alla þá þjónustu sem bærinn veitir. Fyrir bæði lærða og leikna getur það reynst erfitt að átta sig á og skilja hvernig stjórnsýslan virkar. Í grófum dráttum má segja að tveir hópar hafi með höndum stjórnsýslu Mosfellsbæjar þ.e. annars vegar kjörnir bæjarfulltrúar og hins vegar starfsmenn sem hafa með höndum hina daglegu stjórnsýslu.
Kjörnir bæjarfulltrúar
Kjörnir bæjarfulltrúar eru þeir einstaklingar sem kosningabærir íbúar í Mosfellsbæ velja sér til setu í bæjarstjórn Mosfellsbæjar í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar eru á fjögurra ára fresti. Hlutverk bæjarstjórnar er að móta stefnu bæjarins í hinum ýmsu málaflokkum í víðu samhengi og í því sambandi að setja m.a. nauðsynlegar reglur og samþykktir. Bæjarstjórn fer með fjárveitingarvaldið og hvernig stjórnsýslu bæjarins skal háttað svo nokkuð sé nefnt, m.a. að ráða til starfs bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviða.
Meginreglan er sú að íbúar og viðskiptamenn eigi að hafa samband við kjörna fulltrúa ef þeir vilja:
- koma að skoðunum sínum varðandi framtíðarþróun í sveitarfélaginu
- koma á framfæri ábendingum varðandi reglur og samþykktir sem kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á.
Embættismenn og aðrir starfsmenn
Starfsmönnum bæjarins má í grófum dráttum skipta í tvo hópa þ.e. annars vegar svokallaða embættismenn sem hafa með höndum skilgreindar heimildir til sjálfstæðra embættisverka s.s. byggingarfulltrúi, fjármálastjóri o.sv.fr., og hins vegar starfsmenn sem hafa með höndum ýmiss konar stoðþjónustu. Segja má að starfsmenn bæjarins hafi í víðu samhengi það hlutverk að þjónustu bæði íbúa og viðskiptavini bæjarins, auk þess að þjónusta kjörna bæjarfulltrúa og aðra fulltrúa sem bæjarstjórn hefur kjörið til hinna ýmsu starfa fyrir bæinn s.s. nefndarmenn hinna ýmsu nefnda og ráða bæjarfélagsins.
Starfsmenn sjá um að veita þá þjónustu sem sveitarstjórn samþykkir að veitt skuli og fara eftir þeim samþykktum og heimildum sem bæjarstjórn hefur ákveðið í þeim efnum.
Meginreglan er sú að íbúar og viðskiptamenn eigi að hafa samband við starfsmenn ef þeir vilja:
- fá upplýsingar um afgreiðslu á erindum sínum og umsóknum af ýmsu tagi
- fá upplýsingar og leiðbeiningar varðandi hina ýmsu málaflokka og þjónustu
Hér eru nánari upplýsingar um störf kjörinna fulltrúa og embættismanna í skránni Íslensk starfaflokkun sem Hagstofa Íslands heldur utan um
: Vefur Hagstofu.