Mosfellsbær leggur mikla áherslu á náttúrvernd í sveitarfélaginu. Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar fer með hlutverk náttúruverndarnefndar. Hlutverk náttúruverndarnefnda er að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um náttúruverndarmál og jafnframt stuðla að náttúruvernd á sínu svæði, m.a. með fræðslu og umfjöllun um framkvæmdir og starfsemi sem líkleg er til þess að hafa áhrif á náttúruna.
Náttúrurverndarnefnd Mosfellsbæjar hefur árlega sótt samráðsfund Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga þar sem farið er yfir málefni nefndanna.
Nánari upplýsingar um hlutverk náttúruverndarnefnda má finna í Lögum um náttúruvernd nr. 44/1999.
Meðal verkefna sem bærinn hefur komið að eru:
- Verndun náttúruminja í bænum, eins og fossa og áa.
- Varmárósar voru friðlýstir árið 1980 og friðlýsing var endurskoðuð árið 1987.
- Úlfarsá og Blikastaðakró, Leiruvogur, Tröllafoss og Varmá eru náttúruminjar á náttúruminjaskrá.
- Ýmis svæði og staðir sem hafa verndargildi vegna náttúrufars eru afmörkuð sem hverfisverndarsvæði í aðalskipulagi Mosfellsbæjar, en það eru Leiruvogur, Urðir í miðbæ Mosfellsbæjar, Úlfarsá og Blikastaðakró, Kaldakvísl, Suðurá, Varmá, Skammadalslækur og Hólmsá.
- Lokun ólöglegra akslóða á fellum í bænum í náninni samvinnu við landeigendur.
- Kortlagning á slóðum í bænum, gönguslóðum, reiðslóðum og akslóðum, í samvinnu við hagsmunaaðila.
- Flokkun vatnasviða þar sem ástand vatna og áa í landi Mosfellsbæjar var kortlagt.
- Reglulegt hreinsunarátak meðfram ströndum og ám í bænum.
- Bættar fráveitutengingar frá íbúðarhúsum og hesthúsahverfi þar sem húsaskólp er nú leitt í gegnum skólpdælustöðvar til hreinsistöðvar í Reykjavík.
- Hreinsun ofanvatns frá nýrri íbúahverfum með sérstökum hreinsibúnaði.