Skipulags- og byggingarmál

Deiliskipulag og skipulagsvefsjá
Almennt um deiliskipulag og kynningar á einstökum deiliskipulagsverkefnum í Mosfellsbæ. Í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar á að vera hægt að skoða allt gildandi deiliskipulag á landinu.

DeiliskipulagSkipulagsauglýsingar
eru í meginatriðum þrennskonar: Um kynningu á nýjum skipulagstillögum, um endanlega afgreiðslu bæjarstjórnar á skipulagstillögum og loks um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Aðalskipulag
Í gildi er aðalskipulag Mosfellsbæjar 2002-2024, með 13 breytingum sem gerðar hafa verið frá 2005. Endur- skoðun aðalskipulagsins stendur nú yfir og er stefnt að því að ljúka henni um mitt ár 2011.

HúsbyggingByggingarmál
Byggingarfulltrúi áritar uppdrætti og gefur út byggingarleyfi. Embætti byggingarfulltrúa vakir yfir því að hús og önnur mannvirki séu byggð í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglur.

SvæðisskipulagSvæðisskipulag
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 er samvinnuverkefni átta sveitarfélaga höfuðborgarsvæðinu. Það tekur til byggðaþróunar, landnotkunar, umhverfismála, samgangna og veitukerfa ofl.

Lóðir
Mosfellsbær býður upp á lóðir fyrir íbúðarhúsnæði sem og atvinnuhúsnæði á sanngjörnum kjörum. Um er að ræða íbúðalóðir í miðbæ og Krikahverfi og atvinnulóðir í Desjamýri og miðbæ.