Um Mosfellsbæ og kort

Mosfellsbær er bæjarfélag um 8.600 íbúa sem er um 220 ferkílómetrar að stærð í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Byggðarþróun hefur verið ör síðustu árin og sífellt fleiri hafa sótt í þá góðu blöndu borgarsamfélags og sveitar sem þar er að finna. Skipulag tekur mið af fjölbreyttri og fallegri náttúru bæjarfélagsins.  Þar eru víðáttumikil náttúruleg svæði og einstakir útivistarmöguleikar í skjóli fella, heiða, vatna og strandlengju.

Mosfellsbær státar af talsverðri sérstöðu hvað snertir fjölbreytileika.  Bæjarfélagið samanstendur af þéttbýliskjarna við Leirvog þar sem boðið er uppá nauðsynlega þjónustu, auk víðáttumikillar sveitar, svo sem í Mosfellsdal. 

Mosfellingar kunna vel að meta umhverfi sitt og eru almennt mikið útivistarfólk. Hestamennska er áberandi þáttur í daglegu lífi bæjarbúa, enda liggja reiðleiðir til allra átta. Gönguleiðir eru góðar allt frá fjöru til fjalla og óvíða er aðstaða til íþróttaiðkana betri en í Mosfellsbæ.  Tveir golfvellir eru í Mosfellsbæ, ásamt góðri aðstöðu fyrir fuglaskoðun í Leirvogi og við ósa Varmár og Köldukvíslar.

Náttúruperlur og sögulegar minjar eru víða í Mosfellsbæ, má þar nefna Tröllafoss, Helgufoss, Varmá, Mosfellskirkju og fornleifauppgröft við Hrísbrú í Mosfellsdal. Atvinnusaga bæjarins er einnig á margan hátt sérstök og má þar nefna viðamikla ullarvinnslu og kjúklingarækt sem starfsrækt hefur verið í bænum um langt skeið. 

Menning hefur um langt árabil skipað stóran sess í sögu Mosfellsbæjar, þar sem helst má nefna búsetu Nóbelsskáldsins Halldórs Kiljan Laxness að Gljúfrasteini í Mosfellsdal, menningarminjar í Álafosskvos og fjölbreytt menningarlíf.

Saga Mosfellsbæjar

Þróun íbúafjölda

KORT

Kort af Mosfellsbæ (.pdf - 3.1mb)
Útivistarkort (.pdf - 1.8mb)
Kortasjá 
Hlaupaleiðakort (.pdf 1,2MB)
Stikaðar gönguleiðir - kort (.pdf 1.86mb)

Göngu- og hjólastígar í Mosfellsbæ - kort  (.pdf 1.08mb)
Göngu- og hjólastígar á höfuðborgarsvæðinu - kort (.pdf 3.27mb)
Göngu- og hjólastígar í Mosfellsbæ og á höfuðborgarsvæðinu - bæklingur (.pdf 9.99mb)
Hjólavefsja  Hjólavefsjáin er í stöðugri þróun og leiðin sem birtist á kortinu er leiðbeinandi en getur gefið góðar hugmyndir að nýjum leiðum.
Korterskortið (.pdf - 193kb) - kort sem sýnir 1,6 km radíus út frá miðbæ Mosfellsbæjar í því skyni að hvetja fólk til að ganga eða hjóla innanbæjar. 1,6 km tekur einungis 15 mínútur að ganga og 6 mínútur að hjóla.

Blikastaðanes - Þerneyjarsund

Kort af reiðleiðum í Mosfellsbæ, stærð 1:25000 (.pdf 5mb)
Kort af reiðleiðum í Mosfellsbæ, stærð 1:10000  (.pdf 5mb)
Kort af reiðleiðum við Völuteig í Mosfellsbæ (.pdf 1mb)
Kortasjá, yfirlitsmynd af reiðleiðum