Samgöngur

Strætó til og frá Mosfellsbæ

Mosfellsbær er eitt af 7 sveitafélögum á höfuðborgarsvæðinu sem reka Strætó bs. með það að markmiði að veita almenna þjónustu á sviði almenningssamgangna.

Leiðir í Mosfellsbæ
Leið 15  Mosfellsbær – Hlemmur – Vesturbær – Hlemmur – Mosfellsbær
Leið 27 Háholt – Laxnes - Háholt
Leið 57 Akranes – Hvalfjarðargöng – Háholt – Hvalfjarðargöng - Akranes

Þjónustuver Mosfellsbæjar og Íþróttamiðstöðin að Varmá selur farmiða og kort í Strætó. Upplýsingar um aðra sölustaði er að finna hér.

Göngu- og hjólastígakort

Í Mosfellsbæ geta íbúar og gestir ferðast hjólandi eða gangandi um bæinn á öruggan og vistvænan hátt.

Stígar eru lagðir um vinsælar útivistarperlur s.s. meðfram Varmánni og Leirvoginum. Víða eru göngubrýr yfir ár og læki og undirgöng undir umferðaæðar til að auðvelda för.