Heilsuklasi

Hugmyndin að stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ er að hagsmunaaðilar í Mosfellsbæ ásamt tengdum aðilum, taki sig saman um að móta klasa sem byggir á  þeirri þekkingu og reynslu sem samfélagið í Mosfellsbæ býr yfir á sviði endurhæfingar og heilsueflingar.

Tilgangurinn með samstarfinu er að koma á laggirnar klasa til að byggja upp og efla alla starfsemi  og þekkingu  á sviði heilsueflingar, heilsuræktar og endurhæfingar í Mosfellsbæ.

Klasinn var formlega stofnaður að Reykjalundi þann 28. mars 2011.

Í stjórn voru kjörin:
Jón Pálsson formaður, Jónína Sigurgeirsdóttir ritari, Snorri Hreggviðsson gjaldkeri, Björk Ormarsdóttir, Jón Magnús Jónsson og Vigdís Steinþórsdóttir.

Stjórnin hefur ráðið Sigríði Dögg Auðunsdóttur sem framkvæmdastjóra í hlutastarfi tímabundið.

Markmið klasans

Markmið er að virkja Reykjalund, sem er ein þekktasta og rótgrónasta endurhæfingarmiðstöð landsins og alla aðra smærri aðila í bænum til samstarfs um uppbyggingu klasa sem snúast mun um endurhæfingu og heilsueflingu á Íslandi, með áherslu m.a. á eftirfarandi:

1) Fyrirbyggjandi heilsueflingu og lýðheilsu til þess að koma í veg fyrir heilsutjón og veikindi fólks.
2) Skjóta og góða endurhæfingu og heilsueflingu fyrir þá sem verða fyrir veikindum eða slysum.
3) Uppbyggingu heilsutengdrar ferðaþjónustu.

Heilsu- og endurhæfingartengd starfsemi er meginstoð og styrkur (e. „Core“) atvinnulífs í Mosfellsbæ.  Rúmlega 450 manns  starfa  í þessari starfsgrein í Mosfellsbæ  á haustmánuðum 2009.  Það samsvarar um 10-12 % af vinnufærum íbúum bæjarins.  Án vafa er hægt að stórefla þessa grein með markvissu samstarfi þeirra fyrirtækja sem starfa í greininni, tengdum greinum og sveitarfélagsins.

 

Allar nánari upplýsingar veita verkefnisstjórar:
Jón Pálsson, s. 664 2802, netfang: jon@ans.is 
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, s. 894 9050, netfang: sigridurdogg@mos.is
Sævar Kristinsson, s. 824 2424, netfang: sk@netspor.is