
Multicultural and information Centre
Fjölmenningarsetur hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við innflytjendur sem búsettir eru á Íslandi.
Hjá Fjölmenningarsetri er hægt að leita eftir upplýsingum um margt er varðar daglegt líf á Íslandi, stjórnsýsluna og leita eftir aðstoð varðandi flutning til og frá Íslandi.
Fjölmenningarsetur starfrækir upplýsingasíma á pólsku, serbnesku/króatísku, taílensku, spænsku, litháísku og rússnesku (sjá símanúmer á forsíðu vefsins). Svarað er í upplýsingasímann á viðkomandi tungumáli og samskipti eru bundin trúnaði. Þá er alltaf hægt að leita eftir upplýsingum og aðstoð með því að nota ‘Hafðu samband' tengilinn á forsíðu vefsins.
Fjölmenningarsetur er staðsett að Árnagötu 2-4 á Ísafirði en þjónustar allt landið. Skrifstofan er opin frá kl. 9-
16 virkadaga og á skrifstofutíma er ávallt hægt að leita eftir upplýsingum á íslensku og ensku.
Fjölmenningarsetur (kort)
|