Skólahljómsveit Mosfellsbæjar

SkólahljómsveitSkólahljómsveit Mosfellsbæjar

Aðsetur: Í Varmárskóla
Stjórnandi: Daði Þór Einarsson.
Netfang:  skomos[hja]ismennt.is
Upplýsingar um þátttöku og innritun í síma:
525 0715

  

Tilgangur með starfsemi hljómsveitarinnar er að gefa börnum í Mosfellsbæ kost á ódýru og skemmtilegu tónlistarnámi.

Skólahljómsveitin er rekin sem sjálfstæð eining en er hluti af Listaskóla Mosfellsbæjar. Skólahljómsveitin er með aðsetur í Varmárskóla og aðstöðu til kennslu í Lágafellsskóla. Nemendur eru milli 120 - 130 og í þeim hópi eru nokkrir eldri félagar. Hljómsveitinni er skipt í fjóra hópa sem eru byrjendur, yngri deild, eldri deild og gamlir félagar.

Kennt er á hljóðfæri samkvæmt námskrá tónlistarskóla og tónfræði kennd í hljóðfæratímum og í samvinnu við Tónlistardeild Listaskóla Mosfellsbæjar. Nemendur koma tvisvar í viku í einkatíma fyrst um sinn, en einu sinni í viku þegar þeir eru orðnir fullgildir félagar í sveitinni. Samæfingar eru einu sinni í viku fyrir yngstu nemendurna en tvisvar í viku fyrir þá eldri.
Tónfundir eru tvisvar á ári fyrir foreldra og tvennir stórtónleikar vor og haust, en hljómsveitin kemur að jafnaði fram 55-60 sinnum á ári.

Farið er í æfingabúðir auk tónleikahalds og þátttöku á landsmótum Samtaka íslenskra skólahljómsveita. Einnig er samstarf við aðrar hljómsveitir s.s. í Stykkishólmi og Akranesi.

 

Nefndir:
Fræðslunefnd fer með málefni Skólahljómsveitar í umboði bæjarstjórnar

Gjaldskrá Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar