Listaskóli
Listaskóli Mosfellsbæjar
Aðsetur: Háholt 14, 3. og 4. hæð
Símar: 566 6319 og 566 6819
Skólastjóri: Atli Guðlaugsson
Opnunartími: Alla virka daga milli kl. 13:00 - 17:00
Listaskóli Mosfellsbæjar var stofnaður 1. febrúar 2006.
Listaskóli Mosfellsbæjar er rekinn og studdur af sveitarfélaginu.
Listaskólinn samanstendur af:
Tónlistardeild (áður Tónlistarskóli Mosfellsbæjar)
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
Myndlistarskóla Mosfellsbæjar
Leikfélagi Mosfellssveitar
Allar undirstofnanir Listaskólans nema tónlistardeildin eru reknar sem sjálfstæðar einingar og gerðir hafa verið samstarfssamningar á milli Listaskólans og Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar, Myndlistarskóla Mosfellsbæjar og Leikfélags Mosfellssveitar.
Markmið Listaskólans er að samþætta starfsemi þessara stofnana og að tryggja tengsl milli þeirra. Þá er lögð áhersla á að fléttuð verði saman starfsemi Listaskólans við grunn- og leikskóla. Hlutverk Listaskólans er einnig að auka tengsl við aðila utan stofnana bæjarins, ekki síst starfandi listamenn. Það má því segja að Listaskóli Mosfellsbæjar sé regnhlíf yfir fjölbreytta listastarfsemi í Mosfellsbæ.
Nefndir:
Fræðslunefnd fer með málefni Listaskólans í umboði bæjarstjórnar