Foreldrarölt
Í byrjun september hófst á ný foreldrarölt í Mosfellsbæ eftir sumarfrí. Að þessu sinni tekur Lágafellsskóli þátt en foreldrarölt á vegum foreldrafélags Lágafellsskóla hefur legið niðri um sinn.
Foreldrafélög Lágafells- og Varmárskóla skipuleggja foreldrarölt í samstarfi við Rauða Kross Íslands. Stjórn foreldrafélagsins sér um skipulagningu í samstarfi við bekkjarfulltrúa 5.-10. bekkja.
Foreldraröltið fer fram á föstudags- og laugardagskvöldum. Mæting er í húsnæði Rauða Kross Íslands, Þverholti 7, kl. 22:00. Þar tekur starfsmaður RKÍ á móti foreldrum með fræðslu og fer með hópnum á röltið. Rölti lýkur um miðnætti.
Foreldraröltið er hin besta heilsubótarganga og tilvalið er að taka hundinn með.
Tilgangur foreldrarölts er m.a.:
- Að virkja foreldra til samstöðu um að virða reglur um útivist barna og unglinga og að koma í veg fyrir hópamyndun unglinga eftir að lögbundnum útivistartíma er lokið.
- Að koma á tengslum milli foreldra sem eiga börn á unglingsaldri.
- Að foreldrar geti kynnst ástandinu í hverfinu og geti brugðist við af ábyrgð.
- Að gera erfiðara fyrir vímuefnasala að fóta sig í hverfinu. Jafnframt getur röltið dregið úr skemmdarverkum og innbrotum.
Röltið fer fram á föstudags- og laugardagskvöldum.
Fyrir áramót sér FFLS um föstudagskvöld og FFVS um laugardagskvöld.
Eftir áramót sér FFLS um laugardagskvöld og FFVS um föstudagskvold.
Dagatal vegna foreldrarölt FFLS og FFVS 2010-2011
|
FFLS Foreldrafélag Lágafellsskóla
|
FFVS Foreldrafélag Varmárskóla
|
 Kjósarsýsludeild
|