Kvennahlaupið

kvennahlaup

2013

Í ár verður Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ haldið 8. júní um allt land í 24. sinn. Nú er um að gera að fara að huga að því að koma sér í form, kynna sér hlaupahópa í sínu hverfi og mæta fersk til leiks í byrjun júní.
 
Þeir sem vilja skipuleggja hlaup í sínu hverfi, bæjarfélagi eða erlendis er bent á að hafa samband við Jónu Hildi Bjarnadóttur hjá almenningsíþróttaviði ÍSÍ, 514-4000 eða á netfangið jona@isi.is.
Hreyfum okkur saman!


SKORAÐU Á VINKONUR ÞÍNAR, MÖMMU, SYSTUR ÖMMUR, DÆTUR..

Kvennahlaupið er tilvalinn vettvangur fyrir konur til að byrja holla og góða hreyfingu. Hérna getur þú sent áskorun til vinkvenna eða ættingja um að taka þátt í Kvennahlaupinu.  Það er líka tilvalið að minna þær á að láta gott af sér leiða og taka með sér brjóstahaldara og nærföt til að gefa í söfnun Rauða krossins.

 

__________________

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í Mosfellsbæ í ár og má sjá dagsetningu auglýsa síðar. 
Þrjár vegalengdir í boði, 3, 5, og 7 km.   SJÁ KORT AF HLAUPALEIÐUM HÉR
Þáttökugjald er 1250 krónur og innifalið í því er bolur og verðlaunapeningur ásamt kristal. 
Forskráning í hlaupið er í Lágafellslaug og svo frá kl 10 á hlaupadaginn sjálfan einnig verður í boði andlitsmálun fyrir börnin og upphitun hefst kl 10:45.  

Léttar og gómsætar veitingar verða seldar í Hlégarði  ásamt því að frítt verður í Varmárlaug að loknu hlaupi.
Langömmur, ömmur, mömmur og dætur fjölmennum og höfum það gaman saman „ í Mosfellsbæ á hreyfingu“

Hittumst í Sjóvá Kvennahlaupinu 8. júní 2013

  Kvennahlaup 2012

Tilgangurinn að efla heilsu kvenna

Kvennahlaupið í ár verður með stærra sniði en áður en ÍSÍ fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli sínu. Allar konur um land allt eru hvattar til þess að taka daginn frá en tilgangur hlaupsins er að efla heilsu kvenna. Hefð hefur skapast hjá mæðgum, systrum, frænkum og vinkonum að mæta saman í hlaupið og sýna þar með samstöðu kvenna í verki en slagorð hlaupsins í ár er Hreyfing til fyrirmyndar.
 
Nánari upplýsingar um hlaupið og hlaupastaði má finna á Facebook undir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ og á www.sjova.is. Þar má einnig finna gagnasafn upplýsinga fyrir óvana hlaupara um matarræði, útbúnað og leiðir til þess að koma sér af stað í hreyfingu.

Safna brjóstahöldum í tengslum við Kvennahlaupið

brjostahaldararSkortur á nærfötum hjá Rauða krossinum
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Rauði kross Íslands og Sjóvá standa fyrir söfnun á brjóstahöldum og öðrum undirfötum í tengslum við Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem fram fer þann 16. júní.
Árlega velja skipuleggjendur Kvennahlaupsins eitt málefni tengt konum til að vekja sérstaka athygli á. Í ár var ákveðið að hvetja þátttakendur kvennahlaupsins til að gefa nærföt (s.s. brjóstahöld) í fatasafnanir hjálparsamtaka. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum þá skilar nærfatnaður sér síður í hefðbundnum fatasöfnunum en annar fatnaður. Margir átti sig einfaldlega ekki á því að eftirspurn sé eftir þessum fatnaði.
Söfnuninni var hleypt af stokkunum í dag en þá mættu Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram í handknattleik og nýkjörinn leikmaður ársins í N1 deild kvenna, og móðir hennar Soffía Bragadóttir, til Rauða krossins til þess að gefa fyrstu brjóstahöldin. Söfnunin mun standa út júní en hægt verður að koma með fatnaðinn á söfnunarstöðvar Rauða krossins og í Sorpu en einnig verður tekið við brjóstahöldunum við rásmörk Kvennahlaupsins um allt land á hlaupadaginn.

Kvennahlaup/ganga verður frá Hlaðhömrum .. (dagsetning auglýst síðar).
Nokkrar vegalengdir í boði.

Umsjónarmenn verða Alfa og Halla Karen. Skráning er á skrifstofu félagsstarfsins á Hlaðhömrum kl. 13 -16 þar sem bolir verða einnig afhentir.

Heiðursmenn afhenda verðlaunapening og rós að loknu hlaupi/göngu.

Bolir verða seldir á staðnum.

Þátttökugjald er 1.250 kr. Innifalið í því er bolur og verðlaunapeningur.

Hvetjum fjölskyldur og vini til að mæta með sínum konum.

ATH. Vegalengd verður miðuð við getu hvers þátttakanda.