Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Mosfellssveitar
Aðsetur: Bæjarleikhúsinu v/Þverholt, 270 Mosfellsbær
Sími: 5667788
Formaður: Ólöf A. Þórðardóttir
Framkvæmdastjóri:María Guðmundsdóttir
Netfang: lmolof@visir.is
Leikfélagið starfrækir leikhús í bænum allt árið um kring og eru
yfirleitt settar upp tvær veglegar leiksýningar á leikhúsárinu.
Leikfélagið tekur þátt í fjölda uppákoma og menningarviðburða í
Mosfellsbæ, s.s. þrettándabrennu, dagskrá á sumardaginn fyrsta, dagskrá
á 17. júní, jólatrésskemmtunum og fleira. Leiklistarskóli er
starfræktur fyrir börn og unglinga á sumrin.
Árlega vinnur leikfélagið
að sameiginlegri dagskrá og sýningum þeirra aðila er starfa undir
merkjum Listaskóla Mosfellsbæjar.