Samræmd viðbrögð vegna öskufalls og öskufjúks
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa samræmt aðgerðir og viðbrögð vegna svifryksmengunar vegna öskufalls og öskufjúks á höfuðborgarsvæðinu og jafnframt virkjað viðbragðsáætlanir sínar.
Viðbragðsaðilar
og
viðeigandi stofnanir á svæðinu eru meðvitaðar um stöðu mála
og fylgjast
grannt með breytingum sem kunna að verða með veru sinni í
Samhæfingarstöð almannavarna. Tryggt verður að allar
starfseiningar
sveitarfélaganna fái ítarlegar upplýsingar verði öskufall á
svæðinu.
Sveitarfélögin hafa einnig virkjað þá aðila hjá sér sem
fylgjast með
loftgæðum allan sólarhringinn í gegnum fimm mælistöðvar á
höfuðborgarsvæðinu. Ennfremur fylgist eftirlitið vel með
vatnsbólum, en
talið er ólíklegt að neysluvatn spillist þótt aska berist
yfir svæðið.
Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum
og
upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna öskufalls er að finna á
heimasíðum
viðkomandi skóla og sveitarfélags.
Allir viðbragðsaðilar og stofnanir á svæðinu eru
meðvitaðir um stöðu
mála og fylgjast grannt með breytingum. Mikilvægt er að
íbúar
höfuðborgarsvæðisins treysti því og haldi ró sinni. Íbúar
eru jafnframt
hvattir til fylgjast vel með fréttum og kynna sér
upplýsingar og
leiðbeiningar á heimasíðu Almannavarna, www.almannavarnir.is
og heimasíðu landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is.
|
Gagnlegar upplýsingar um viðbrögð við öskufalli eða öskufjúki:
Bæklingur frá Almannavörnum
Vefur Almannavarna
Vefur Landlæknisembættisins
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu
Vefur VÍS um forvarnir og viðbrögð við öskufalli.
Tilmæli frá Vinnueftirlitinu til fyrirtækja
Tilmæli frá Almannavörnum vegna stórra loftræstikerfa
Viðbragðsáætlun Mosfellsbæjar
Um öskufall og vatnsból
Öskufok/öskumistur – leiðbeiningar frá Landlækni
|