Heilsuklasi í Mosfellsbæ
Nýjustu fréttir um heilsuklasann:

Vel heppnaður kynningarfundur um stofnun
heilsuklasa í Mosfellsbæ var
haldinn í gær. Alls mættu um 60 á fundinn og á fimmta tug rituðu undir
viljayfirýsingu um að taka þátt í stofnun heilsuklasans. Mikil samstaða
var
Almennt um hugmyndina að stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ:
Hugmyndin að stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ er að hagsmunaaðilar í
Mosfellsbæ ásamt tengdum aðilum, taki sig saman um að móta klasa sem
byggir á þeirri þekkingu og reynslu sem samfélagið í Mosfellsbæ býr
yfir á sviði endurhæfingar og heilsueflingar.
Kynningarfundur um stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ verður haldinn
fimmtudaginn 4. mars í Listasal Mosfellsbæjar kl. 20. Vinsamlegast
skráið þátttöku í Þjónustuveri Mosfellsbæjar í s. 525 6700 eða með
tölvupósti á mos[hja]mos.is
Markmið er að virkja Reykjalund, sem er ein þekktasta og rótgrónasta
endurhæfingarmiðstöð landsins og alla aðra smærri aðila í bænum til
samstarfs um uppbyggingu klasa sem snúast mun um endurhæfingu og
heilsueflingu á Íslandi, með áherslu m.a. á eftirfarandi:
1) Fyrirbyggjandi heilsueflingu og lýðheilsu til þess að koma í veg
fyrir heilsutjón og veikindi fólks.
2) Skjóta og góða endurhæfingu og heilsueflingu fyrir þá sem verða fyrir
veikindum eða slysum.
3) Uppbyggingu heilsutengdrar ferðaþjónustu.
Heilsu- og endurhæfingartengd starfsemi er meginstoð og styrkur (e.
„Core“) atvinnulífs í Mosfellsbæ. Rúmlega 450 manns starfa í þessari
starfsgrein í Mosfellsbæ á haustmánuðum 2009. Það samsvarar um 10-12 %
af vinnufærum íbúum bæjarins. Án vafa er hægt að stórefla þessa grein
með markvissu samstarfi þeirra fyrirtækja sem starfa í greininni,
tengdum greinum og sveitarfélagsins.
Tilgangurinn með stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ
Tilgangurinn með samstarfinu er að koma á laggirnar klasa til að byggja
upp og efla alla starfsemi og þekkingu á sviði heilsueflingar,
heilsuræktar og endurhæfingar í Mosfellsbæ.
Markmið
Að tvöfalda umfang heilbrigðisstarfsemi í Mosfellsbæ með því að taka upp
og fylgja eftir stefnu sem kveður á um að Mosfellsbær verði miðstöð
heilsueflingar og endurhæfingar á Íslandi. Klasinn spili lykilhlutverk í
uppbyggingu og framgangi þess.
Stefnt er að því að a.m.k. 500 ný störf verði til í sveitarfélaginu í
heilbrigðisþjónustu og tengdum greinum. Þessi starfsemi verði jafnframt
grunnstoð undir aðra starfsemi s.s. veitingarekstur, bakarí ,
matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og fl. í Mosfellsbæ. Farið verði út í
uppbyggingu á svæðinu eftir því sem þarf, en jafnframt verði stefnt á
að nýta betur þau mannvirki sem þegar eru til staðar.
Dæmi um verkefni fyrir heilsuklasann:
1. Koma á samstarfi við PrimaCare varðandi möguleika tengda
uppbyggingu sjúkrahúss, hótels auk annarrar starfsemi sem tengist því.
2. Laða að fyrirtæki í heilsutengdri stafsemi og koma upp
sameiginlega aðstöðu fyrir þau sbr. Orkuhúsið í Reykjavík
3. Vinna að hagkvæmari lausnum sem aðilar innan klasans geti boðið
heilbrigðisyfirvöldum á sviði heilsueflingar og endurhæfingar. Þetta
verði gert í samstafi við aðila eins og Reykjalund.
4. Skipuleggja, þróa og samræma heilsutengda ferðaþjónustu innan
Mosfellsbæjar með því að nýta sóknarfæri varðandi gistingu,
veitingastaði og kaffihús, söfn og fleira í heilsutengdri ferðaþjónustu
5. Kynna / þróa möguleika til heilsutengdrar búsetu í Mosfellsbæ
6. Byggja upp þekkingu á heilsueflingu, lýðheilsu og forvörnum í
samstafi við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
7. Kynna heilsubæinn Mosfellsbæ sem miðstöð heilsu- og endurhæfingar á
Íslandi og þá möguleika sem bjóðast aðilum sem vilja starfa á því sviði
í bæjarfélaginu.

Hagsmunaaðilar
Dæmi um hagsmunaaðila sem gætu komið að
verkefninu og verið þátttakendur í klasanum:
• Mosfellsbær
• Reykjalundur, Múlalundur og Skálatún
• PrimaCare
• Fyrirtæki á svæðinu:
o Matvælafyrirtæki s.s. á sviði alifuglaræktunar, grænmetisræktunar,
bakarí og fl.
o Ferðaþjónustuaðilar, veitinga- og gististaðir,
o Verslanir og þjónustuaðilar o.fl.
o Söfn, menninga- og listastofnanir
• Heilsufyrirtæki, fjárfestar og sjálfstætt starfandi fagaðilar í
heilbrigðisstarfsemi og tengdum rekstri
• Landeigendur á svæðinu (Helgafellsbyggingar, Leirvogstunga o.fl.)
• Framkvæmdaraðilar, hönnuðir og iðnaðarmenn og tengdir aðilar
• Heilbrigðisráðuneytið
• Háskólar
• Íþrótta- og félagasamtök á svæðinu (Afturelding, Hörður, Kjölur,
o.fl.)
• Nýi framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
• Tryggingafyrirtæki
• Líkamsræktarstöðvar á svæðinu
• Íþróttamiðstöðvarnar í sveitarfélaginu
• Ráðgjafa- og þekkingafyrirtæki (stór og smá) á sviði heilsueflingar
og lýðheilsu
Tími
Lagt er til að fyrri hluti ársins 2010 verði nýttur til að fullmóta
hugmyndina, kynna hana og fá hagsmunaaðila að verkefninu. Uppbygging
atvinnustarfsemi í tengslum við verkefnið ætti að geta skilað strax
árangri árið 2010. Sérstakur kynningarfundur verður haldinn 4. mars
2010.
Verkefnisstjórar undirbúningsvinnu:
Jón Pálsson jon[hja]ans.is
s. 664 2802
Sævar Kristinsson sk[hja]netspor.is
s. 824 2424
Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridurdogg[hja]mos.is
s. 525 6708