Rósa Magnúsdóttir sagnfræðingur fjallar um ósýnilega vinnu vinstri kvenna og sjálfboðastörf þeirra í tengslum við félagsstarf sósíalista í fyrri hluta kalda stríðsins laugardaginn 27. apríl kl. 14. Sérstaklega verður horft til kvennanna Rannveigar Kristjánsdóttur, Nönnu Ólafsdóttur, Auðar Laxness og Þóru Vigfúsdóttur en tvær hinar síðastnefndu lögðu mikið á sig við móttöku erlendra gesta í kalda stríðinu.
Heimili Auðar og Halldórs Laxness á Gljúfrasteini lék þarna stórt hlutverk en einnig verða til umfjöllunar fleiri rými þar sem konur létu til sín taka í félagslífi og útgáfustarfi sósíalista.
Frítt inn og öll velkomin.
Vordagskrá Gljúfrasteins
Alla laugardaga frá 20. apríl til 31. maí. Frítt er á alla viðburðina. Hver viðburður stendur í um það bil klukkustund.
20. apríl kl. 14
,,Snerting af skapandi anda og nýjum lífsskoðunum”. Benedikt Hjartarson fjallar um Rauðar heimsbókmenntir á Íslandi 1919-1943.
27. apríl kl. 14
,,Nú vil ég bara láta bjóða mér”: Þóra Vigfúsdóttir og ósýnileg vinna kvenna í tengslum við móttöku erlendra gesta í kalda stríðinu. Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.
4. maí kl. 14
Ásur þrjár og Ingur tvær: Vinahópur Erlendar í Unuhúsi. Jón Karl Helgason og Sunneva Kristín Sigurðardóttir.
11. maí kl. 14
Listaverkaleiðsögn. Ólafur Ingi Jónsson forvörður á Listasafni Íslands.
18. maí kl. 14
En þeim á ég flest að þakka. Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Guðný Dóra Gestsdóttir fjalla um Erlend í Unuhúsi og Auði Laxness.
25. maí kl. 14
Hönnun og arkítektúr. Birta Fróðadóttir heldur lifandi leiðsögn um hönnun og arkitektúr á Gljúfrasteini.
31. maí kl. 20
Plöturnar í Unuhúsi. Sunneva Kristín Sigurðardóttir fjallar um plötur Erlendar í Unuhúsi. Viðburðurinn fer fram í Mengi, Óðinsgötu 2.