Ólafur Ingi Jónsson forvörður á Listasafni Íslands mun leiða gesti um Gljúfrasteini og fjalla um listaverkin í húsinu. Verkin sem prýða Gljúfrastein eru eftir m.a. Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Louisu Matthíasdóttur og Kjarval.
Ólafur Ingi hefur starfað um árabil á Listasafni Íslands sem forvörður. Hann var sýningarstjóri 2015 á yfirlitssýningu um verk Nínu Tryggvadóttur og ritstýrði bók um hana ásamt Birtu Guðjónsdóttur, sem gefin var út í tengslum við sýninguna. Ólafur Ingi hefur rannsakað málverkafalsanir og gert grein fyrir niðurstöðum sínum í ræðu og riti.
Vordagskrá Gljúfrasteins
Alla laugardaga frá 20. apríl til 31. maí. Frítt er á alla viðburðina. Hver viðburður stendur í um það bil klukkustund.
18. maí kl. 14
En þeim á ég flest að þakka. Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Guðný Dóra Gestsdóttir fjalla um Erlend í Unuhúsi og Auði Laxness.
25. maí kl. 14
Hönnun og arkítektúr. Birta Fróðadóttir heldur lifandi leiðsögn um hönnun og arkitektúr á Gljúfrasteini.
31. maí kl. 20
Plöturnar í Unuhúsi. Sunneva Kristín Sigurðardóttir fjallar um plötur Erlendar í Unuhúsi. Viðburðurinn fer fram í Mengi, Óðinsgötu 2.