Í dag, föstudaginn 12. apríl var skrifað undir samning við fyrirtækið Óskatak vegna fyrsta áfanga nýframkvæmda á Varmárvöllum.
Verkið var boðið út fyrr í vetur og var fyrirtækið Óskatak ehf með lægsta tilboðið eða kr. 136.359.500 sem var töluvert undir kostnaðaráætlun.
Verkið felur í sér jarðvinnu og fergingu vegna gervigrasvallar. Auk þess felst verkið í uppgreftri fyrir frjálsíþróttavelli, fyllingu og fergingu á honum þegar fergingu er lokið á gervigrasvelli.
Helstu magntölur í verkefninu eru:
- Hlaupabrautarefni, upprif og förgun: 4.800 m2
- Malbik, upprif og förgun: 5.600 m2
- Uppúrtekt og brottakstur: 18.360 m3
- Aðflutt malarfylling: 26.950 m3
- Brottflutt malarfylling, afgangsfarg: 2.900 m3
Verkið er þegar hafið en verið er að flytja efni á brott þessa dagana sem verður nýtt í uppgræðslu á gömlum efnisnámum í Krýsuvík. Gert er ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið í byrjun desember.
Næstu áfangar eru lýsing, lagnavinna og yfirborðsfrágangur sem verður boðið út í þremur útboðum. Sumarið/haustið 2025 verður svæðið fullbúið með knattspyrnuvelli (að undanskilinni stúku) og 200 m hlaupabraut ásamt æfingaaðstöðu fyrir frjálsar íþróttir.
Mynd: Guðjón Svansson leiðtogi íþrótta- og lýðheilsumála, Óskar Ólafsson framkvæmdastjóri Óskataks, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Birna Kristín Jónsdóttir formaður Aftureldingar og Illugi Þór Gunnarsson verkefnastjóri umhverfissviðs.
Tengt efni
Samningur um innréttingar íþróttahúss Helgafellsskóla undirritaður
Samningur um innri frágang og innréttingar við íþróttahús sem tilheyrir Helgafellsskóla hefur verið undirritaður við fyrirtækið Land og verk ehf.
Lokun á hluta Þverholts 24. apríl 2024
Lokun á Vefarastræti vegna framkvæmda 23. apríl 2024