Á hverju ári eru 1-2 leikvellir á opnum svæðum endurgerðir og leiktækjum skipt út.
Framkvæmdir eru nú hafnar við endurgerð leikvallar við Leirutanga þar sem búið er að rífa allt malbik af og verið er að jarðvegsskipta fyrir nýtt undirlag.
Fótboltavöllurinn verður með gervigrasi og verða ný mörk sett upp. Á svæðinu er einnig körfuboltavöllur og verða gúmmímottur á honum auk þess sem nýjar körfur verða settar upp. Samhliða þessum framkvæmdum verður skipt um girðingar sem umkringja vellina.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki fyrir næstu mánaðarmót.
Tengt efni
Samningur um innréttingar íþróttahúss Helgafellsskóla undirritaður
Samningur um innri frágang og innréttingar við íþróttahús sem tilheyrir Helgafellsskóla hefur verið undirritaður við fyrirtækið Land og verk ehf.
Lokun á hluta Þverholts 24. apríl 2024
Lokun á Vefarastræti vegna framkvæmda 23. apríl 2024